Blæjubann samþykkt á æðsta stigi
Búrka. Reuters
Stjórnlagadómstóll Frakklands, sem er æðsta stig dómsvalds í Frakklandi, samþykkti í dag bann við blæjum sem hylja allt andlitið á opinberum svæðum. Talsverðar deilur hafa verið meðal Frakka um blæjubannið en það var samþykkt með miklum meirihluta á þingi.
Áður hafði stjórnlagadómstóllinn varað við því að bannið gæti brotið í bága við stjórnarskrár. Frumvarpið hefur hins vegar tekið breytingum frá þeim tíma og samþykkti ráðið í dag það frumvarp sem var samþykkt í báðum deildum þingsins.
Eftir sem áður verður leyft að ganga með slæðu yfir hárið, eingöngu er lagt bann við umfangsmeiri slæðum er nefnast nítsjab og kufli er nefnist búrka, hann hylur allan líkamann og er m.a. algengur í Afganistan.
Í frétt sem birtist í Morgunblaðinu í sumar kom fram að ýmsum rökum hafi verið beitt gegn slæðunum, fyrst og fremst er þó nefnt að með slæðuburðinum séu múslímakonur að láta undan þvingunum og hótunum ofstækisfullra íslamista sem vilji að múslímakonur haldi sig ávallt til hlés og haldi fast við forneskjulega siði.
Kynjunum sé mismunað, karlar þurfi ekki að bera neinar slæður. Einnig sé ljóst að hryðjuverkamenn geti falið sig innan um óbreytta borgara með tól sín undir slæðum og búrkum. Aðrir segja að margar múslímakonur vilji sjálfar hylla forna menningu sína með slæðuburðinum, fatnaðurinn sé oft tákn um sjálfsvitund þeirra.
Hugtakið opinberir staðir er skilgreint vítt í lögunum, átt er við opinberar byggingar og almenningsfarartæki, götur, markaðstorg, einkafyrirtæki og skemmtistaði.
Skoðanakannanir hafa leitt í ljós að þorri kjósenda í Frakklandi styður bannið og það gerir einnig forseti landsins, Nicolas Sarkozy. En andstæðingar bannsins benda á að aðeins örlítill minnihluti múslímakvenna í Frakklandi gangi með slæður sem hylji allt andlitið.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 13. júlí 2010, Erlent Neðri deildin samþykkti slæðubann
- Þriðjudagur, 14. september 2010, Erlent Frakkar setja bann við búrkum
- Mánudagur, 8. ágúst 2011, Erlent Von á yfirlýsingu frá Obama
- Þriðjudagur, 5. júlí 2011, Erlent Mismuni ekki vegna klæðaburðar
- Fimmtudagur, 1. apríl 2010, Erlent Belgar vilja banna andlitsblæju
-
Humperdinck og ömmurnar eru elst
-
Kosning um viðræður óvanaleg
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina



































