109 þúsund Írakar látnir
Julian Assange, stofnandi WikiLeaks. Vefurinn hefur boðað til blaðamannafundar í fyrramálið. Reuters
Skjöl, sem uppljóstrunarvefurinn WikiLeaks birtir á morgun, sýna að 109 þúsund Írakar hafa látið lífið af völdum hernaðaraðgerðanna í Írak á árunum 2003 til 2009. Þar af eru 63% óbreyttir borgarar.
Þetta fullyrðir arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera sem hefur fengið aðgang að hluta skjalanna og rannsakað þau í rúma tvo mánuði. Danska dagblaðið Information segist einnig hafa fengið aðgang að skjölunum, 391.832 talsins. Þá hefur breska blaðið Guardian, bandaríska blaðið New York Times og þýska tímaritið Der Spiegel fengið aðgang að skjölunum líkt og í sumar þegar WikiLeaks birti 77 þúsund leyniskjöl um stríðið í Afganistan.
WikiLeaks hefur boðað til blaðamannafundar í fyrramálið og segir að þá verði gefin meiriháttar yfirlýsing. Al-Jazeera segir, að WikiLeaks muni birta bandarísk leyniskjöl, sem sýni að Bandaríkjaher hafi haldið skrár yfir látna og særða Íraka þótt herinn neiti því opinberlega.
Um miðjan október bárust fréttir af því, að Bandaríkjaher hefði birt tölur um að nærri 77 þúsund Írakar hefðu látið lífið í átökum á tímabilinu frá janúar 2004 til ágúst 2008 en á þessu tímabili var mannfallið mest í Írak.
Upplýsingarnar voru birtar á lítið áberandi stað á vef bandarísku herstjórnarinnar í júlí og bandarískir fjölmiðlar tóku ekki eftir þeim fyrr en nú nýlega.
Samkvæmt þessum tölum létust 63.185 óbreyttir borgarar og 13.754 íraskir félagar í öryggissveitum á þessu tímabili. Þá kom fram að 121.649 óbreyttir borgarar að minnsta kosti særðust. 3592 hermenn vestræna bandalagshersins létu lífið á þessu tímabili og 30.068 særðust.
Mjög mikið ósamræmi er í tölum, sem hafa birst um áætlað mannfall í Írak frá því Bandaríkin og fleiri ríki gerðu innrás í landið í mars 2003. Breska læknablaðið Lancet birti árið 2006 rannsókn þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að nærri 655 Írakar hefðu látið lífið fram að því en þeirri tölu var harðlega mótmælt af ýmsum aðilum.
Bloggað um fréttina
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Davíð og Halldór gerðu þjóðina meðseka í þessu blóðbaði -
Ómar Ragnarsson Meðábyrgð Íslendinga. -
Magnús Sigurðsson Var Saddam þess virði? -
Kristján H. Kristjánsson Nánar um umfjöllun Al Jazeera um skjölin -
Njörður Helgason Stolt getum við verið
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 23. október 2010, Erlent Upplýsingar í WikiLeaksskjölum koma ekki á óvart
- Laugardagur, 23. október 2010, Erlent Snýst um sannleikann
- Miðvikudagur, 25. ágúst 2010, Erlent WikiLeaks boðar ný skjöl
- Laugardagur, 27. nóvember 2010, Erlent Ábyrgðarleysi að birta skjöl
- Mánudagur, 18. október 2010, Erlent Pentagon biðlar til fjölmiðla
-
Humperdinck og ömmurnar eru elst
-
Kosning um viðræður óvanaleg
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina



































