Reyndu ekki að stöðva misþyrmingar

Fréttamenn hópast að Julian Assange á blaðamannafundi í Lundúnum í morgun. stækka

Fréttamenn hópast að Julian Assange á blaðamannafundi í Lundúnum í morgun. Reuters

Mörg þeirra 391.832 leyniskjala, sem vefurinn WikiLeaks birti í gærkvöldi fjalla um fullyrðingar um að íraskar öryggissveitir hafi beitt íraska fanga og aðra hörðu. Önnur skjöl benda til þess, að bandaríska hernámsliðið hafi ekkert reynt að grípa inn í þessi mannréttindabrot Íraka.

WikiLeaks veitti tilteknum fjölmiðlum aðgang að skjölunum fyrir rúmum tveimur mánuðum og í gær fengu blaðamenn að skoða skjölin í lokuðu herbergi í þrjár stundir í Lundúnum. 

Í einu skjalinu lýsa bandarískir hermálafulltrúar fangelsi í Bagdad þar sem 95 föngum er haldið í einu fangelsi og látnir sitja með krosslagða fætur og bundið fyrir augun.  

Í skýrslunni segir, að margir fanganna séu með sár eftir að hafa verið brenndir með sígarettum, séu marðir eftir barsmíðar og með opin sár. Haft er eftir einum fanganum að 12 fangar hafi látist af völdum sjúkdóma vikurnar á undan.  

Í öðrum skýrslum er sagt að Írakar berji fanga og konur hafi verið skotnar til bana við bandarískar varðstöðvar.  

Breska blaðið Guardian, sem fékk aðgang að skjölunum fyrirfram, segir þau sýna að bandarísk stjórnvöld hafi ekki rannsakað hundruð skýrslna um misþyrmingar, pyntingar, nauðganir og jafnvel morð, sem íraskir lögreglumenn og hermenn frömdu.

Guardian segir, að talið sé að WikiLeaks hafi fengið þessi skjöl frá sama heimildarmanni, og lét vefnum í té rúmlega 90 þúsund skýrslur um hernað Bandaríkjamanna í Afganistan. WikiLeaks hefur ekki upplýst hver heimildarmaðurinn er.  

Skjölin varpa ljósi á þann þátt, sem stjórnvöld í Íran hafa átt í uppreisninni gegn hernámsliðinu í Írak. Fullyrt er að Íranar hafi útvegað uppreisnarmönnum í Írak vopn og þjálfað íraskar dauðasveitir í bardagatækni svo þær gætu ráðist á herflokka bandalagshersins og íraska embættismenn.  Að sögn blaðanna Times og Guardian virðist Lýðveldisvörðurinn í Írak hafa leikið aðalhlutverk í þessu.

Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fordæmdi í gærkvöldi að skjölum væri lekið sem gætu sett bandaríska hermenn og óbreytta borgara í Írak í hættu.  Geoff Morrell, talsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins, sagði að skjölin væru svipmyndir af atburðum, sumum sorglegum og öðrum hversdagslegum, og segðu ekki alla söguna. 

Mynd, sem birt var árið 2004 og sögð var sýna misþyrmingar á íröskum föngum.

Mynd, sem birt var árið 2004 og sögð var sýna misþyrmingar á íröskum föngum. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.

Eldur í norskri eyju

18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »
Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Ríkasta kona heims

15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Breivik ætlar ekki að áfrýja

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik með lögmönnum sínum þeim Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra.
14:49 Norski fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivik bað um orðið í lok réttarhaldanna yfir honum í dag. Hann sneri sér til dómaranna og sagðist hafa íhugað að áfrýja ef hann yrði fundinn sekur, en síðan komist að þeirri niðurstöðu að gera það ekki. Meira »

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.
14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.
07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
ORLOFSHÚS Á AKUREYRI
Gisting Akureyri Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm einb...
Vw Golf 1.6 Highline 2003
VW Golf árg 2003 ekinn aðeins 112.000 km. búið er að skipta um tímareim. Ver...
Nissan Patrol árg. 2000 til sölu
NISSAN PATROL 2,8 L. TD ELEGANCE '35 breyttur, árg. 2000 til sölu. Verð 1.350, e...
ÍSLENSKT, JÁ TAKK
Sérsmíðum beina stiga, efni, hæð og halli eftir óskum hvers og eins. Mex ehf. Sí...
 
Starfsmaður í ræstingu
Ræstingar
??????????? ? ???????? ?????????? ??...
Til sölu m-bens e-200

Til sölu M-BENS E-200 Árgerð...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Uppgjörsvinna
Skrifstofustörf
Uppgjörsvinna Endurskoðunarskrifstofa au...