Ný skýrsla um helförina

Strangtrúaður gyðingur skoðar sýningu á Yad Vashem-helfararsafninu í Jerúsalem. stækka

Strangtrúaður gyðingur skoðar sýningu á Yad Vashem-helfararsafninu í Jerúsalem. Reuters

Bandarísk samtök þeirra, sem komust lífs af úr helförinni og afkomenda þeirra, fögnuðu í dag útgáfu nýrrar skýrslu opinberrar nefndar, sem komst að þeirri niðurstöðu að þáttur þýska utanríkisráðuneytisins í helför gyðinga á valdatíma nasista hefði verið mun meiri en áður var talið.

Skýrslan, sem gerð var á vegum þýska utanríkisráðuneytisins, verður birt í næstu viku en kaflar úr henni birtust í þýskum blöðum um helgina.  

„Þýskaland hefur skoðað fortíð sína með heiðarlegum hætti," segir Elan Steinberg, varaforseti bandarískra samtaka gyðinga. „Nú hefur fyrri tilraunum til að hvítþvo ráðuneytið og starfsmenn þess verið hrundið."

Skýrslan er 880 blaðsíður og nefnist Ráðuneytið og fortíðin. Hana skrifuðu þýsku sagnfræðingarnir Eckart Conze og German Norbert Frei, Bandaríkjamaðurinn Peter Hayes og Ísraelinn Moshe Zimmermann.

Í skjali, sem sagnfræðingarnir birta, réttlætir embættismaðurinn Franz Rademacher, sem sá um „málefni gyðinga" hvers vegna hann þurfi að fara í opinbera heimsókn til Belgrad.

„Útrýming gyðínga í Belgrad og viðræður við ungverska sendimenn í Búdapest," skrifaði Rademacher.  

Conze segir, að fyrri fullyrðingar um að þýskir sendimenn á valdatíma nasista hafi lítið tekið þátt í skipulagðri útrýmingu gyðinga séu alrangar. Þvert á móti hafi þýska utanríkisráðuneytið stutt hverjar þær aðgerðir, sem stuðluðu að útrýmingunni.

„Utanríkisráðuneytið var glæpastofnun," sagði Conze við tímaritið Der Spiegel. 

Joschka Fischer fól sagnfræðingunum að gera skýrsluna árið 2005 þegar hann var utanríkisráðherra.  

„Mér er enn óglatt," sagði Fischer við Der Spiegel eftir að hafa lesið skýrsluna.

Þar kemur m.a. fram. að frá miðjum fjórða áratug síðustu aldar og þar til síðari heimsstyrjöldin braust út 1939 hafi það verið hluti af starfsþjálfun þýskra sendimanna, að eiga fund með Adolf Hitler, þáverandi kanslara, og heimsækja útrýmingarbúðirnar í  Dachau.

Þá kemur fram í skýrslunni, að eftir stríðið hafi Konrad Adenauer, kanslari, sem einnig var utanríkisráðherra á árunum 1951 til 1955, haldið mörgum sendimönnum, sem störfuðu meðan á stríðinu stóð, áfram á launaskrá. Þeir voru oft sendir sendir til Arabaríkja eða Suður-Ameríku þar sem litlar líkur voru á að þeir yrðu handteknir fyrir stríðsglæpi. 

Árið 1966 lét Willy Brandt, þáverandi utanríkisráðherra og síðar kanslari,  Ernst Achenbach starfa áfram sem sendiherra þrátt fyrir aðild hans að helförinni. Sagnfræðingarnir segja, að Achenbach hafi verið háttsettur starfsmaður í þýska sendiráðinu í París og tekið virkan þátt í brottflutningi gyðinga í Frakklandi.

Yfirhylming utanríkisráðuneytisins hélt áfram fram á níunda áratug síðustu aldar  þegar ráðuneytið neitaði að afhenda sagnfræðingum tiltekin skjöl frá tímum þriðja ríkisins.

Der Spiegel segir, að þótt Fischer hafi fyrirskipað rannsóknina fyrir fimm árum hafi sagnfræðingarnir fjórir fundið fyrir tregðu í ráðuneytinu, sem hafi ekki verið fúst að greiða götu þeirra.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.

Eldur í norskri eyju

18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »
Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Ríkasta kona heims

15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Breivik ætlar ekki að áfrýja

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik með lögmönnum sínum þeim Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra.
14:49 Norski fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivik bað um orðið í lok réttarhaldanna yfir honum í dag. Hann sneri sér til dómaranna og sagðist hafa íhugað að áfrýja ef hann yrði fundinn sekur, en síðan komist að þeirri niðurstöðu að gera það ekki. Meira »

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.
14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.
07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR FATNAÐUR Á FRÁBÆRU VERÐI - ERTU BÚIN AÐ KÍKJA? http://www.123budin.is/...
2-3 herb.íbúð óskast til kaups
Óska eftir 2-3h. íbúð á Reykjavíkur sv. vinsamlegast sendið staðs. og verð á net...
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005 , ekið 4.700 km. , er á nýjum Bigho...
Kvistir
Kvistir Sérsmíðaðir kvistir á þök. Uppsetning tekur ...
 
Útboðsauglýsing - faxaflóahafnir

Mynd af auglýsingu ...
Reykjanesbær sjóvarnir

Útboð Reykjanesbær, sjóvarnir 2012...
Umsjónarkennsla - sérkennsla - textílkennsla - þroskaþjálfi
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...