Mótmæltu kynferðislegu ofbeldi presta

Bernie McDaid, stofnandi Survivors Voice, mætti ásamt félögum sínum við Vatikanið í Róm. stækka

Bernie McDaid, stofnandi Survivors Voice, mætti ásamt félögum sínum við Vatikanið í Róm. MAX ROSSI

Fórnarlömb kynferðisbrotamanna innan kaþólsku kirkjunnar mótmæltu brotunum við Vatikanið í dag. Um 100 manns, fórnarlömb og fjölskyldur þeirra, mættu og kveiktu á kertum við Péturstorgið. 

Það voru bandarísku samtökin, Survivor's Voice, sem stóðu fyrir mótmælunum. Talsmenn þeirra sögðu að þeim hefði ekki verið hleypt inn á torgið þar sem Benedikt páfi XVI. messaði. Sumir mótmælendur fóru hins vegar inn á torgið sem einstaklingar og skyldu eftir skilaboð og steina til að minna á málstað sinn.

Meðal þeirra sem mótmæltu kynferðisbrotum presta var Marco Lodo Rizzini, talsmaður heyrnardaufra barna sem dvöldu á stofnun á Ítalíu á milli 1950-1980. 67 einstaklingar sem dvöldu á stofnuninni saka kaþólskan prest fyrir að hafa beitt þá kynferðislegu ofbeldi.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.

Eldur í norskri eyju

18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »
Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Ríkasta kona heims

15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Breivik ætlar ekki að áfrýja

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik með lögmönnum sínum þeim Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra.
14:49 Norski fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivik bað um orðið í lok réttarhaldanna yfir honum í dag. Hann sneri sér til dómaranna og sagðist hafa íhugað að áfrýja ef hann yrði fundinn sekur, en síðan komist að þeirri niðurstöðu að gera það ekki. Meira »

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.
14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.
07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Íbúð óskast sem næst Lyngby - Kaupmannahöfn
Erum ungt bar með lítið barn og bráðvantar íbúð til leigu. Erum að fara í DTU sk...
Kristalsljósakrónur til sölu
Glæsilegar kristalsljósakrónur, veggljós, matar og kaffistell, og skartgripir ti...
Trébox til sölu
Falleg trébox til sölu. Seljast öll á 2.000 kr. Upplýsingar í síma 863-7879 efti...
Úrval af fjarstýrðum þyrlum og m.fl.
Erum með fjarstýrðar þyrlur í miklu úrvali. Netlagerinn slf Dugguvogur 17-19, 2....
 
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Námsstyrkir - bandalag kvenna í reykjavík

Námsstyrkir Bandalag kvenna í Reyk...
Skólastjóri við grandaskóla
Grunn-/framhaldsskóla
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...