Fagna frelsi Suu Kyi
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fagnaði því í dag, að Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma, var látin laus úr stofufangelsi. Hvatti Ban leiðtoga í Búrma jafnframt til að láta alla pólitíska fanga lausa.
„Framkvæmdastjórinn gerir ráð fyrir, að hún muni ekki sæta frekari takmörkunum og hann hvetur stjórnvöld til byggja á þessari ákvörðun og láta alla aðra pólitíska fanga lausa," segir í yfirlýsingu, sem talsmaður Bans sendi frá sér. „Lýðræði og sátt fela það í sér, að allir landsmenn fá að taka þátt í stjórnmálalífi landsins."
Barack Obama, Bandaríkjaforseti, tók undir með Ban. Í yfirlýsingu, sem hann sendi frá sér í Japan, þar sem hann er staddur, hvatti hann stjórnvöld í Búrma til að láta aðra pólitíska fanga lausa.
„Þótt stjórnvöld í Búrma hafi gengið ótrúlega langt til að einangra og þagga niður í Aung San Suu Kyi hefur hún haldið áfram hugrakkri baráttu sinni fyrir lýðræði, friði og breytingum í Búrma," sagði Obama. „Hún er hetja í mínum augum og veitir innblástur öllum þeim, sem vilja vinna að framgangi mannréttinda í Búrma og annarstaðar í heiminum."
„Enn full af orku“
Suu Kyi er 65 ára að aldri og var sæmd friðarverðlaunum Nóbels 1991, árið eftir að flokkur hennar sigraði í þingkosningum sem herforingjastjórnin ógilti síðar til að hindra að flokkurinn kæmist til valda. Formaður verðlaunanefndarinnar, Francis Sejested, lýsti friðarverðlaunahafanum sem einstöku „dæmi um mátt hinna vanmáttugu“ frammi fyrir harðstjórunum.
Suu Kyi heillaði þjóðina með persónutöfrum sínum, ræðusnilld og stálvilja í kosningunum fyrir tuttugu árum. Hún nýtur enn mikillar virðingar í landinu þrátt fyrir tilraunir valdhafanna til að þagga niður í henni.Suu Kyi hefur verið í stofufangelsi samfleytt í sjö ár en embættismenn í Búrma gáfu til kynna í gær að hún yrði leyst úr haldi um helgina. Hún hefur lítið sagt um hvað hún hyggist fyrir eftir að hún fær frelsi að nýju.
„Hún er enn full af orku,“ hefur fréttastofan AFP eftir Andrew Heyn, sendiherra Bretlands í Búrma, en hann fékk að heimsækja Suu Kyi í fyrra. „Hún fylgist vel með, hvikar hvergi frá hugsjón sinni og skilaboðin sem ég fékk þegar ég talaði við hana – ekki bara með því sem hún sagði heldur einnig líkamstjáningunni – voru þau að þetta væri kona sem vildi láta til sín taka.“
Maung Zarni, sérfræðingur í málefnum Búrma við London School of Economics, segir að vinsældir Suu Kyi hafi ekki minnkað frá árinu 2002 þegar hún var síðast leyst úr haldi. „Nú þegar 22 ár eru liðin frá því að hún haslaði sér völl í stjórnmálunum er hún orðin að stofnun og fólkið mun fylkja sér um hana eins lengi og hún lifir,“ sagði Zarni.
Aung San Suu Kyi er dóttir þjóðfrelsishetjunnar og hershöfðingjans Aungs Sans sem var myrtur í júlí 1947, hálfu ári áður en Búrma fékk sjálfstæði. Hún nam heimspeki, stjórnmálafræði og hagfræði við Oxford-háskóla og bjó lengi í Bretlandi og á Indlandi áður en hún sneri aftur til heimalandsins árið 1988 þegar móðir hennar lá fyrir dauðanum. Hún var fyrst dæmd í stofufangelsi ári síðar þegar herforingjunum hraus hugur við mikilli lýðhylli hennar.
Frelsi Suu Kyi takmarkað?
Þótt hershöfðingjarnir í Búrma hafi mikinn beyg af Aung San Suu Kyi virðast þeir telja sig knúna til að láta hana lausa til að draga úr gagnrýni á nýlegar þingkosningar í landinu, að sögn fréttaskýrenda. Nokkrir þeirra sögðu að Suu Kyi myndi fá takmarkað frelsi til að tryggja að hún gæti ekki haldið fundi sem gætu grafið undan hershöfðingjunum og bandamönnum þeirra sem fengu meirihluta þingsæta í kosningunum. Flokkur Suu Kyi tók ekki þátt í þeim og stjórnarandstaðan, stjórnvöld í mörgum vestrænum ríkjum og alþjóðleg mannréttindasamtök segja að kosningarnar hafi ekki verið frjálsar og lýðræðislegar.Herforingjar eiga að skipa fjórðung þingsætanna og geta hindrað breytingar á stjórnarskránni.






































