Flugmaður missti sjónina tímabundi vegna leysigeisla

Norskur flugmaður norræna flugfélagsins SAS missti sjónina tímabundið eftir að geisla frá leysibendi var beint að flugvél, sem hann stjórnaði. Flugvélin var nýfarin á loft frá flugvellinum í Safangri þegar þetta gerðist í janúar og að sögn blaðsins Adresseavisen blindaðist flugmaðurinn í nokkrar mínútur.

Blaðið segir, að tilkynnt hafi verið um 20 tilvik þar sem leysigeisla var beint að flugvélum við Stafangur. 

Flugmaðurinn, Helge Rasch, segir við Adresseavisen, að annar flugmaður vélarinnar hafi tekið við stjórninni og farþegarnir urðu ekki varir við neitt. Rasch fékk sjónina aftur um þremur mínútum síðar en var náttblindur næstu daga.

Að sögn Adresseavisen hafa norsk loftferðayfirvöld á þessu ári fengið 126 tilkynningar um tilvik af þessu tagi.

Fram kom í gær, að geislavarnastofnanir Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar telja, að takmarka ætti innflutning á öflugum leysibendum á Evrópska efnahagssvæðið og banna almenna notkun þeirra. 

Geisla úr slíkum bendi var beint að flugvél í aðflugi á Akureyri í byrjun vikunnar.  Lögreglan á Akureyri upplýsti málið og tók í sínar vörslur tvo leysibenda, sem ungir drengir voru með.

Frétt Adresseavisen

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert