Evrusvæðið á tvo kosti

Evrumerkið við höfuðstöðvar Evrópska seðlabankans. stækka

Evrumerkið við höfuðstöðvar Evrópska seðlabankans. Reuters

mbl.is Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is

Evrusvæðið á tvo kosti í stöðunni ef það á að standa af sér kreppuna og verða gjaldmiðill í Evrópu til frambúðar. Fyrri kosturinn er að aðildarríkin stígi skref í átt að sameiginlegri hagstjórn með frekari sameiningu ESB-ríkjanna. Í síðara lagi að evrusvæðið verði klofið í tvennt.

Þetta er mat Stephens Booth, sérfræðings hjá hugveitunni Open Europe í Lundúnum, en hún hefur lengi staðið fyrir gagnrýni á evruna sem hagstjórnartæki.

Máli sínu til stuðnings bendir Booth á að frá upptöku evrunnar hafi Þjóðverjar lagt áherslu á að halda launum niðri til að örva útflutning.

Á sama tíma hafi ríki á jaðri evrusvæðisins, Grikkland og Portúgal þar með talin, ekki fylgt sömu stefnu.

Góðærið var blekking

Jaðarríkin hafi nýtt sér lágt vaxtastig á evrusvæðinu og búið við velsæld á síðasta áratug sem nú sé komið í ljós að hafi verið „blekking“. 

„Portúgal hefur verið læst inni á evrusvæðinu og það hefur dregið úr samkeppnishæfni landsins. Landinu hefur ekki tekist að draga úr launakostnaði líkt og Írum tókst raunar um hríð. Írar gengu í gegnum mikið hagvaxtarskeið og standa frammi fyrir miklum vandamálum.

Portúgal hefur hins vegar gengið í gegnum stöðnun á síðustu tíu árum. Portúgölum hefur ekki tekist að lækka kostnað í samanburði við önnur evruríki. Vaxtastigið hentaði ekki portúgalska hagkerfinu sem notaðist við of hátt skráðan gjaldmiðil,“ segir Booth of á við evruna.

Stöðugleiki víkur fyrir óvissu

- En ef við víkjum að hinni hliðinni. Hvaða kosti hefur evran haft í för með sér?

„Ætli að það megi ekki segja að hún hafi haft í för með sér stöðugleika fram að þessu. Útlitið fram undan er hins vegar ekki bjart. Við hjá Open Europe höldum því fram að evran sé óstöðugur gjaldmiðill fyrir evruríkin á jaðrinum. Við teljum Portúgal í þeim hópi.“

Booth heldur áfram og segir að ef Portúgal þurfi á neyðaraðstoð að halda, líkt og allt útlit sé fyrir, séu líkur á að Spánn fylgi í kjölfarið. Fari svo þurfi að koma til neyðaraðstoð upp á hundruð milljarða evra - þúsundir milljarða króna - en ekki tugi milljarða evra líkt og hjá Grikkjum og Írum.

Viðbrögð markaðarins að undanförnu sýni að hans mati að markaðurinn hafi ekki trú á evrunni sem framtíðargjaldmiðli í óbreyttri mynd.

Eini valkosturinn sem skuldugum evruríkjum standi til boða sé að draga úr kostnaði, þar með talið launum, og útgjöldum hins opinbera. Við slíkan niðurskurð verði ekki komist hjá félagslegum og efnahagslegum hliðaráhrifum sem verði álfunni þungbær.

Treyst á þýskan björgunarhring

- Undanfarinn áratugur hefur verið tímabil mikils uppgangsskeiðs. Erum við að horfa fram á mörg erfið ár í efnahagslegu tilliti?

„Það er erfið spurning. Við teljum að evran í óbreyttri mynd sé ósjálfbær. Við horfðum fram á tíu ára uppgangsskeið sem síðan reyndist blekking. Ríkisstjórnir gátu tekið fé að láni með mun lægri kostnaði en þær hefðu átt að geta. Þær stóðu í þeirri trú að ef illa færi myndu Þjóðverjar koma þeim til bjargar. Á Írlandi er vandinn að hluta til annars eðlis en þar tók einkageirinn mikið fé að láni af svipuðum ástæðum því hvatinn til að taka lán var mikill.“

Inntur eftir því hvernig hann sjái fyrir sér framtíð evrunnar segir Booth að annars vegar kunni sú atburðarás að fara í hönd að stuðlað verði að frekari sameiningu evruríkjanna á efnahagssviðinu þar sem Þjóðverjar standi straum af kostnaðinum við gjaldmiðilssamstarfið. Slíkt fyrirkomulag kalli á mikla fjármagnsflutninga frá efnuðum evruríkjum til þeirra fátækari, ójafnvægi sem vekja muni margar spurningar um lýðræði í samstarfinu.

Hin atburðarásin sé klofningur evrunnar í sterka og veiku evru, eftir efnahag evruríkjanna.

Evran átti að sameina Evrópu

Fyrri atburðarásin kalli á slíka íhlutun Þjóðverja að hún muni aldrei samrýmast þýsku stjórnarskránni.

- Telurðu að hugmyndin að baki evrusvæðinu hafi falið í sér grundvallarveilur frá upphafi?

„Já. Við [hjá Open Europe] beittum okkur gegn upptöku evrunnar í Bretlandi vegna þess að efnahagsrökin að baki gjaldmiðlinum gengu ekki upp,“ segir Booth og bendir á að evruvæðing ESB-ríkjanna hafi haft það pólitíska markmið að binda ríki Evrópu nánari böndum.

Evran hafi því verið pólitískt tæki.

Stephen Booth

Stephen Booth

Þýska sambandsþingið í Berlín. Booth telur að Þjóðverjar yrðu að bera uppi nánari samvinnu evrusvæðisins.

Þýska sambandsþingið í Berlín. Booth telur að Þjóðverjar yrðu að bera uppi nánari samvinnu evrusvæðisins. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.

Eldur í norskri eyju

18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »
Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Fangar látnir lausir vegna verkfalls

Frá Bergen í Noregi.
20:29 Tugir fanga í fangelsinu í Bergen í Noregi voru leystir úr haldi í morgun vegna verkfalls opinberra starfsmanna í landinu. Fangarnir í fangelsinu, 72 að tölu, voru kallaðir á fund í morgun þar sem þeim var tilkynnt að fangelsið yrði tæmt til þess að fangaverðirnir gætu farið í verkfall og flestir fanganna yrðu því látnir lausir. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Ríkasta kona heims

15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.
14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »

Breivik ætlar ekki að áfrýja

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik með lögmönnum sínum þeim Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra.
14:49 Norski fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivik bað um orðið í lok réttarhaldanna yfir honum í dag. Hann sneri sér til dómaranna og sagðist hafa íhugað að áfrýja ef hann yrði fundinn sekur, en síðan komist að þeirri niðurstöðu að gera það ekki. Meira »

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.
07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Kawasaki KLE 500
Til sölu Kawasaki árgerð 2007, ekið 6035km. Allt í einum pakka,hjól, jakki, bux...
TIL LEIGU 20-60 FM IÐNAÐARPLÁSS
Til leigu 20-60 fm iðnaðarpláss. Staðsett 20 mínútur frá Hafnarfirði. Er einnig ...
GLUGGA,HURÐASMÍÐI OG MÓTAUPPSLÁTTUR.
Smíða glugga,hurðir og opnanlegaglugga í gömul og ný hús:Allt unnið úr fyrstaflo...
TÖLVUÞJÓNUSTA
Tölvuþjónusta Alhliða tölvuviðgerðir; Stýrikerfi...
 
15229 bílaleigubílar ríkiskaup

15229 - Bílaleigubílar - Rammasamni...
Director of the administration division
Stjórnunarstörf
The European Free Trade Association is c...
Námsstyrkir - bandalag kvenna í reykjavík

Námsstyrkir Bandalag kvenna í Reyk...
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...