Erlent
| AFP
| 17.12.2010
| 14:20
Kaþólska kirkjan hylmdi yfir með barnaníðingi
Leiðtogar rómversk-kaþólsku kirkjunnar hylmdu yfir með glæpsamlegu háttalagi alræmds barnaníðings og fyrrverandi prests, sem beitti hundruð barna á Írlandi kynferðislegu ofbeldi í tæpa 2 áratugi. Þetta segir í nýrri skýrslu sem birt var í dag.
Skýrslan er afrakstur vinnu sérstakrar rannsóknarnefndar um kynferðisbrot innan kirkjunnar í Dublin og lýsir hún prestinum, Tony Walsh, sem „líklega alræmdasta barnaníðingi" sem rannsóknin beindist að. Í skýrslunni er Vatíkanið harðleg gagnrýnt, sem og leiðtogar kirkjunnar í Dublin og írska lögreglan, fyrir meðhöndlun þeirra á máli Walsh, sem þekktur var sem „syngjandi presturinn" og lagði mikið upp úr Elvis Presley eftirhermum.
Á meðan hann var prestur söng hann með hljómsveit og tengist fjöldi ásakana á hendur honum ofbeldi sem hann beitti börn í tengslum við tónleika sveitarinnar. Árum saman var Walsh fluttur á milli safnaða til að „forðast hneyksli" og hélt hann áfram að beita börn ofbeldi þrátt fyrir að prestar og prelátar, biskupar og erkibiskupar hefðu vitað af gjörðum hans.
Í skýrslunni er m.a. greint frá því að Walsh hafi gengið svo langt að nauðga dreng í safnaðarheimili eftir jarðarför föður hans. Walsh var fyrr í þessum mánuði dæmdur í 16 ára fangelsi, eftir að hann var fundinn sekur um kynferðisofbeldi gegn þremur drengjum á 8. og 9. áratugnum. Rannsóknarnefndi segist hafa nöfn um fleiri en 40 til viðbótar sem hafi orðið fyrir honum.
Þótt hann noti sjálfur ekki orðalagið kynferðisofbeldi hefur Walsh viðurkennt að hann hafi notað börn til að fá „kynferðislega svölun" á að giska á hálfsmánaðarfresti á 8 ára tímabili. Líklegt er talið að hann hafi í reynd beitt hundruð barna kynferðisofbeldi þótt fæst þeirra hafi stigið fram.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 10. maí 2011, Erlent Bregst við ofbeldi gegn börnum
- Miðvikudagur, 21. apríl 2010, Erlent Páfi heitir að grípa til aðgerða
- Fimmtudagur, 19. ágúst 2010, Erlent Nýtt barnaníðsmál innan kaþólsku kirkjunnar
- Föstudagur, 25. desember 2009, Erlent Fleiri biskupar segja af sér
- Laugardagur, 18. september 2010, Erlent Páfi bað með fórnarlömbum
-
Humperdinck og ömmurnar eru elst
-
Kosning um viðræður óvanaleg
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
N.P. ÞJÓNUSTA
N.P. þjónusta. Óska eftir bókhalds-, eftirlits- og gæslustörfum. Hafið samband í...
TANGLEWOOD GÍTARAR
Tanglewood gítarar í úrvali. Fást hjá okkur. ...
JCB 3CX SUPER TRAKTORSGRAFA
Til sölu JCB 3CX SUPER Traktorsgrafa árg. 1996. Notuð 12000 stundir. Vél í
g...
VW TOUAREG V6 TDI
Tilboð 4.200 þ. kr. Ásett 4.600 þ. kr., árg.2005, akst. 110.000 km. Álfelgur, au...