Konurnar sem ásaka Assange

Julian Assange, einn stofnenda WikiLeaks, sætir alvarlegum ásökunum af hálfu tveggja sænskra kvenna. stækka

Julian Assange, einn stofnenda WikiLeaks, sætir alvarlegum ásökunum af hálfu tveggja sænskra kvenna. Reuters

Sænsku konurnar tvær sem saka Julian Assange, einn stofnenda WikiLeaks, um nauðgun, kynferðislega áreitni og þvingun eru 31 árs gömul baráttukona fyrir femínisma og 27 ára gamall aðdáandi Assange, samkvæmt heimildum sem AFP fréttastofan vitnar til.

Assange hefur sagt að ásakanir kvennanna séu ófrægingarherferð. Þær hafa staðið utan sviðsljóssins. Önnur er flutt til yfirráðasvæða Palestínumanna og er þar í erindum kristilegra samtaka. Hin hefur lokað símanúmeri sínu. 

AFP gefur ekki upp nöfn kvennanna og sænskir saksóknarar hafa ekki birt nöfnin. 

Fröken A og fröken W, eins og þær eru kallaðar, voru kallaðar til að bera vitni fyrir fulltrúum bresks dómstóls í Stokkhólmi, en Bretar hafa enn ekki orðið við framsalsbeiðni Svía á Assange. Konurnar tengjast báðar Assange í gegnum viðburð þann 14. ágúst sl.

Þá hélt Assange, sem er 39 ára Ástrali, erindi í Stokkhólmi á ráðstefnu kristilegs hóps innan sænska jafnaðarmannaflokksins. Fröken A vann fyrir hópinn og var óformlegur tengiliður Assange við blaðamenn meðan á heimsókn hans stóð.

Hún leyfði Assange einnig að gista hjá sér frá því hann kom til Stokkhólms 11. ágúst, samkvæmt vitnisburði kvennanna  hjá lögreglu sem AFP hefur undir höndum.

Fröken A og Assange höfðu margoft kynmök í eins herbergis íbúð hennar  í Stokkhólmi, samkvæmt sænskum götublöðum sem greindu frá smáatriðum sem voru yfirstrikuð í afritum af vitnisburði sem fröken A gaf lögreglunni.

Fulltrúar sænska saksóknarans sögðu við yfirheyrslu breska dómstólsins að „ólögleg þvingun“ hafi farið fram 14. ágúst því þá hafi Assange haldið fröken A fastri á kynferðislegan hátt.

Tilvik sem varð 18. ágúst er flokkað sem „kynferðisleg áreitni“ því þá hafði Assange kynmök við fröken A án þess að nota verju, þrátt fyrir „skýran vilja hennar“ um að verja væri notuð. Breski rétturinn fékk líka að heyra að Assange hafi „viljandi áreitt“ fröken A sama kvöld sem braut gegn henni kynferðislega.

Þrátt fyrir þetta dvaldi Assange áfram í íbúð frökenar A til 20. ágúst og fylgdi henni í samkvæmi 15. ágúst.

Hin 31 árs gamla fröken A lýsir sjálfri sér á bloggi sínu, sem er enn opið, þannig að hún sé „stjórnmálafræðingur, fjölmiðlamaður, frumkvöðull og lausapenni með sérhæfingu í trú og stjórnmálum, jafnréttismálum, femínisma og Rómönsku Ameríku.“

Aðdáun hennar á Nestor Kirchner, fyrrverandi forseta Argentínu, sem kemur fram í meistaraprófsritgerð hennar um Kúbu og bloggfærsla, sem hún er nú búin að fjarlægja, um hvernig á að hefna sín á fyrrverandi kærasta hafa leitt til sögusagna í bloggheimum um hvers vegna hún ákærir Assange.

„CIA útsendari, reiður femínisti/Múslíma-aðdáandi, kristinn bókstafstrúarmaður, lesbía og brjálæðislega ástfangin af manni, getur maður verið þetta allt á sama tíma,“ skrifaði hún á Twitter síðu sinni fyrr í þessum mánuði.

Fröken W, sem er 27 ára, var í hópi áheyrenda á fyrirlestri Assange 14. ágúst. Ekki er vitað jafn mikið um bakgrunn hennar og starf og um meðákæranda hennar. Í skýrslu lögreglunnar er aðdáun hennar á Assange og fundir hennar með honum tíunduð.

Hún sá hann í sjónvarpsviðtali þegar WikiLeaks birtu leyniskjöl Bandaríkjanna um stríðið í Afganistan og sagði lögreglunni að henni hafi þótt hann „áhugaverður, hugrakkur og aðdáunarverður“.

Þegar hún frétti af fyrirlestrinum í Stokkhólmi ákvað hún að mæta og krafðist þess að fá að verja kvöldinu með Assange og vinum eftir fyrirlesturinn. Þau enduðu ein í kvikmyndahúsi. Hún sagði lögreglunni að þau hafi daðrað og hann hafi sagt að honum þætti hún „mjög aðlaðandi“.

Tveimur dögum síðar fóru þau til heimilis frökenar W í Enköping, um 50 km norðvestur af Stokkhólmi. Þau fóru með járnbrautalest og Assange notaði tímann til að lesa um sjálfan sig á Twitter og þegar þau komu til Enköping voru „hrifningin og spennan farin“, eins og hún sagði lögreglunni.

Ásökunin um nauðgun er rakin til atviks sem varð síðar þetta kvöld í heimili frökenar W. Hún sagði breska réttinum að Assange hafi haft kynmök við hana þegar hún var sofandi og notaði hann ekki verju.

Þau borðuðu saman morgunmat morguninn eftir og „í tilraun til að af-dramatísera það sem gerðist“ gerði hún „kaldhæðnar athugasemdir“. Hún fylgdi honum síðan á brautarstöðina og hann lofaði að hringja til hennar.

Claes Borgström verjandi sagði að konurnar tvær hafi komist að því að þær deildu svipaðri reynslu af Assange og farið til lögreglunnar 20. ágúst. „Þær voru ekki vissar um að þær vildu (leggja fram kæru), þær vildu fá ráð,“ og höfðu líka áhyggjur af að hafa smitast af HIV, sagði Borgström blaðamönnum fyrr í mánuðinum.

„Þegar þær sögðu lögreglumanninum, konu, frá þessu þá gerði hún sér grein fyrir því að það sem (konurnar) sögðu henni frá væri glæpur.  Hún tilkynnti þetta saksóknara sem ákvað að handtaka Assange,“ sagði verjandinn.

Daginn eftir var málið á forsíðu götublaðsins Expressen og þar með komst hneykslið í hámæli.

Assange hefur ekki veri ákærður. Hann segir að lögfræðingum hans hafi ekki verið sýndar neinar sannanir sem styðji ásakanirnar en saksóknararnir staðhæfa að þær tengist ekki á neinn hátt starfsemi WikiLeaks.

  • Til baka
  • Senda

Erlent »

Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands.

Þátttaka í vörnum Íslands ótengd NATO

21:27 Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, hafnaði því alfarið í umræðum í finnska þinginu í dag að tillaga um að Finnar tækju þátt í norrænu samstarfi við að gæta lofthelgi Íslands væri hugsuð til þess að koma Finnlandi inn í Atlantshafsbandalagið (NATO). Meira »
Frá Sýrlandi.

„Marshall-aðstoð“ fyrir Sýrlendinga

21:23 Sendiherrar og starfsmenn utanríkisþjónustunnar í um 60 löndum ræddu í dag áætlun um að koma efnahag Sýrlands til bjargar, en átök hafa staðið yfir í landinu undanfarna 14 mánuði. Fulltrúar landa Arababandalagsins, Evrópusambandsins, Persaflóaríkjanna, auk fulltrúa SÞ tóku þátt í viðræðunum. Meira »

Fangar látnir lausir vegna verkfalls

Frá Bergen í Noregi.
20:29 Tugir fanga í fangelsinu í Bergen í Noregi voru leystir úr haldi í morgun vegna verkfalls opinberra starfsmanna í landinu. Fangarnir í fangelsinu, 72 að tölu, voru kallaðir á fund í morgun þar sem þeim var tilkynnt að fangelsið yrði tæmt til þess að fangaverðirnir gætu farið í verkfall og flestir fanganna yrðu því látnir lausir. Meira »

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.
17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Eldur í norskri eyju

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.
18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Ríkasta kona heims

15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Breivik ætlar ekki að áfrýja

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik með lögmönnum sínum þeim Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra.
14:49 Norski fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivik bað um orðið í lok réttarhaldanna yfir honum í dag. Hann sneri sér til dómaranna og sagðist hafa íhugað að áfrýja ef hann yrði fundinn sekur, en síðan komist að þeirri niðurstöðu að gera það ekki. Meira »

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.
14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Ösp er nýtt úr með Mp4 spilara og fleiru
Öspin er 8GB armbandsúr, Mp3, Mp4, útvarp, myndasafn og fl. Verð 18.750,- Góð dæ...
Sturtuvagn óskast
Sturtuvagn óskast Í skiptum fyrir hest eða hesta. Upplýsingar í hestaregn@g...
FRÁBÆRT SUMARHÚS TIL LEIGU
Frábært sumarhúsi á góðum stað. Stutt á 3 golfvelli. Frítt í einn völl. Uppl. í ...
SAUMAVÉLAR
Saumavélar- saumavélaviðgerðir Nýjar og notaðar...
 
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Forval fit

Mynd af auglýsingu ...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....