Efnahagur Kína knýr stóraukna vígvæðingu

Liang Guanglie. stækka

Liang Guanglie.

Ört vaxandi hagkerfi Kína leggur grunninn að nútímavæðingu og eflingu kínverska hersins. Kínverjar vilja auka herstyrk sinn án utanaðkomandi aðstoðar, að sögn varnarmálaráðherra Kína.

„Á næstu fimm árum mun herinn okkar undirbúa sig betur fyrir hernaðarátök á öllum mögulegum sviðum,” segir Liang Guanglie varnarmálaráðherra í viðtölum við kínverska ríkismiðla í dag.

„Við lifum kannski á friðartímum, en við megum aldrei gleyma stríði, aldrei að losa okkur við alla hestana og henda byssunum og byssustingjunum.” Liang segir að her Kína muni halda áfram að útfæra getu sína til þess að heyja hátæknivætt stríð, auk þess sem hefðbundinn herstyrkur verði aukinn.

Liang mun eftir tíu daga taka á móti Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sem kemur í opinbera heimsókn til Kína. Hann segir að herinn, sem nú telur 2,3 milljónir manna, muni ekki horfa til útlanda eftir bættum tækjabúnaði.

„Við munum standa á eigin fótum við að leysa það mál og þróa okkar búnað. Nútímavæðing kínverska hersins getur ekki oltið á öðrum og ekki verður hægt að kaupa hana að utan,” segir Liang.

Aukin hernaðarútgjöld Kínverja eru farin að valda öðrum Asíuríkjum áhyggjum. Í þessum ánuði sögðu japönsk stjórnvöld að vígvæðingin væri áhyggjuefni og að Kínverjar væru nú með mun meiri hernaðarlega viðveru á Austur- og Suður-Kínahafi.

Bandarískir sérfræðingar sjá Kína sem ógnun við alger yfirráð Bandaríkjanna á Kyrrahafinu fram til þessa. Kínverjar halda því hins vegar fram að engin ógn stafi af hernum þeirra. Liang segir að verið sé að efla sjóher, flugher og eldflaugavarnir, en á sama tíma sé mjög verið að draga úr hjá landhernum.

Gates verður í Peking níunda til tólfta janúar. Nú er ár síðan Kínverjar slitu samskiptum á milli hers síns og hers Bandaríkjamanna, eftir að þeir síðarnefndu gerðu milljarða dollara samning við Taívan um sölu á hergögnum.

Í millitíðinni tóku Kína og Bandaríkin aftur upp takmörkuð samskipti um tæknileg málefni á milli herja ríkjanna. Það var Liang sem bauð Gates að koma til Peking.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands.

Þátttaka í vörnum Íslands ótengd NATO

21:27 Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, hafnaði því alfarið í umræðum í finnska þinginu í dag að tillaga um að Finnar tækju þátt í norrænu samstarfi við að gæta lofthelgi Íslands væri hugsuð til þess að koma Finnlandi inn í Atlantshafsbandalagið (NATO). Meira »
Frá Sýrlandi.

„Marshall-aðstoð“ fyrir Sýrlendinga

21:23 Sendiherrar og starfsmenn utanríkisþjónustunnar í um 60 löndum ræddu í dag áætlun um að koma efnahag Sýrlands til bjargar, en átök hafa staðið yfir í landinu undanfarna 14 mánuði. Fulltrúar landa Arababandalagsins, Evrópusambandsins, Persaflóaríkjanna, auk fulltrúa SÞ tóku þátt í viðræðunum. Meira »

Skotar lögbinda áfengisverð

Skotar hafa bundið verð á áfengi í lög til að reyna að hemja drykkju landsmanna.
21:50 Skosk stjórnvöld hafa lögbundið lágmarksverð á áfengi í þeim tilgangi að stemma stigu við óhóflegri drykkju landsmanna. Ekki má selja áfengseininguna fyrir lægra verð en 50 pens frá og með apríl á næsta ári, en slík eining er skilgreind sem einn sentílítri. Meira »

Eldur í norskri eyju

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.
18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Fangar látnir lausir vegna verkfalls

Frá Bergen í Noregi.
20:29 Tugir fanga í fangelsinu í Bergen í Noregi voru leystir úr haldi í morgun vegna verkfalls opinberra starfsmanna í landinu. Fangarnir í fangelsinu, 72 að tölu, voru kallaðir á fund í morgun þar sem þeim var tilkynnt að fangelsið yrði tæmt til þess að fangaverðirnir gætu farið í verkfall og flestir fanganna yrðu því látnir lausir. Meira »

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.
17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Ríkasta kona heims

15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Breivik ætlar ekki að áfrýja

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik með lögmönnum sínum þeim Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra.
14:49 Norski fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivik bað um orðið í lok réttarhaldanna yfir honum í dag. Hann sneri sér til dómaranna og sagðist hafa íhugað að áfrýja ef hann yrði fundinn sekur, en síðan komist að þeirri niðurstöðu að gera það ekki. Meira »

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.
14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Ösp er nýtt úr með Mp4 spilara og fleiru
Öspin er 8GB armbandsúr, Mp3, Mp4, útvarp, myndasafn og fl. Verð 18.750,- Góð dæ...
www.keyrsla.is Sendibílar
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Vörudreifing - fyrirtækjaflutningar. Öflug,G...
BÆKUR ,TÍMARIT,MATREIÐSLUBÆKUR OG LP. PLÖTUR TIL SÖLU
https://bland.is/messageboard/messageboard.aspx?badvid=28470738&showAdvid=284707...
TRAKTORSDEKK
Traktorsdekk rýmingarsala 11.2-24 kr. 35.900. 14.9-24 kr. 49.900. 13.6-24...
 
15229 bílaleigubílar ríkiskaup

15229 - Bílaleigubílar - Rammasamni...
Starfsmaður í ræstingu
Ræstingar
??????????? ? ???????? ?????????? ??...
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...
Lausar kennarastöður
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik- og gru...