Tókst að hindra skæruliðaárás

JP/Politikens Hus við Ráðhústorgið í Kaupmannahöfn þar sem ritstjórnarskrifstofur Jyllands-Posten eru. stækka

JP/Politikens Hus við Ráðhústorgið í Kaupmannahöfn þar sem ritstjórnarskrifstofur Jyllands-Posten eru. Reuters

Sérfræðingar segja, að aldrei hafi munað eins litlu og nú að umfangsmikil hryðjuverkaárás yrði gerð á danskri grundu. Fimm manns eru í haldi lögreglu í Danmörku og Svíþjóð, grunaðir um að hafa ætlað að gera árás á ritstjórnarskrifstofur Jyllands-Posten í Kaupmannahöfn.

Hans Jørgen Bonnichsen, fyrrverandi aðgerðastjóri dönsku öryggislögreglunnar PET, segir við vef Berlingske Tidende, að í ljósi þess að lögreglan lagði hald á vélbyssu með hljóðdeyfi sé líklegt að mennirnir hafi ætlað að gera einskonar skæruliðaárás líka þeirri, sem gerð var í Mumbai á Indlandi í nóvember 2008. Þá létu 175 manns lífið. 

Bonnichsen segir, að gera verði ráð fyrir að mennirnir hafi ætlað að nota fleiri vopn en þau sem PET hefur þegar lagt hald á. 

PET segir, að rekja megi áform um hryðjuverkaárás á Jyllands-Posten til skopmynda af Múhameð spámanni, sem blaðið birti haustið 2005 og vöktu mikið uppnám meðal múslima. 

Í byrjun ársins reyndi maður vopnaður öxi að myrða teiknarann Kurt Westergaard, einn teiknaranna. Á árinu voru nokkrir handteknir í Bandaríkjunum og Noregi, grunaðir um að ætla að gera árás á ritstjórnarskrifstofur Jyllands-Posten. Þá var maður handtekinn í Kaupmannahöfn í haust, grunaður um að hafa reynt að útbúa bréfasprengju sem hann ætlaði að senda til blaðsins.

Áformuðu hryðjuverkaárás

Lögreglubíll utan við íbúð í Herlev þar sem mennirnir voru handteknir.

Lögreglubíll utan við íbúð í Herlev þar sem mennirnir voru handteknir. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands.

Þátttaka í vörnum Íslands ótengd NATO

21:27 Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, hafnaði því alfarið í umræðum í finnska þinginu í dag að tillaga um að Finnar tækju þátt í norrænu samstarfi við að gæta lofthelgi Íslands væri hugsuð til þess að koma Finnlandi inn í Atlantshafsbandalagið (NATO). Meira »
Frá Sýrlandi.

„Marshall-aðstoð“ fyrir Sýrlendinga

21:23 Sendiherrar og starfsmenn utanríkisþjónustunnar í um 60 löndum ræddu í dag áætlun um að koma efnahag Sýrlands til bjargar, en átök hafa staðið yfir í landinu undanfarna 14 mánuði. Fulltrúar landa Arababandalagsins, Evrópusambandsins, Persaflóaríkjanna, auk fulltrúa SÞ tóku þátt í viðræðunum. Meira »

Skotar lögbinda áfengisverð

Skotar hafa bundið verð á áfengi í lög til að reyna að hemja drykkju landsmanna.
21:50 Skosk stjórnvöld hafa lögbundið lágmarksverð á áfengi í þeim tilgangi að stemma stigu við óhóflegri drykkju landsmanna. Ekki má selja áfengseininguna fyrir lægra verð en 50 pens frá og með apríl á næsta ári, en slík eining er skilgreind sem einn sentílítri. Meira »

Eldur í norskri eyju

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.
18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Fangar látnir lausir vegna verkfalls

Frá Bergen í Noregi.
20:29 Tugir fanga í fangelsinu í Bergen í Noregi voru leystir úr haldi í morgun vegna verkfalls opinberra starfsmanna í landinu. Fangarnir í fangelsinu, 72 að tölu, voru kallaðir á fund í morgun þar sem þeim var tilkynnt að fangelsið yrði tæmt til þess að fangaverðirnir gætu farið í verkfall og flestir fanganna yrðu því látnir lausir. Meira »

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.
17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Ríkasta kona heims

15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Breivik ætlar ekki að áfrýja

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik með lögmönnum sínum þeim Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra.
14:49 Norski fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivik bað um orðið í lok réttarhaldanna yfir honum í dag. Hann sneri sér til dómaranna og sagðist hafa íhugað að áfrýja ef hann yrði fundinn sekur, en síðan komist að þeirri niðurstöðu að gera það ekki. Meira »

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.
14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
NISSAN MICRA
Nissan Micra GX/LX. Nýskr. 1/1999, ekinn 115 þ.km, bensín, 5...
N.P. ÞJÓNUSTA
N.P. þjónusta. Óska eftir bókhalds-, eftirlits- og gæslustörfum. Hafið samband í...
3 Silky Terrier strákar til sölu
Tilbúnir til afhendingar. Heilsufarssk., örmerktir og fullbólusettir. Ættbókarf...
Honda CR-V 2008 Til Sölu
Til sölu Honda Cr-v skráð 10.1.2008 Ekin 90.xxx þ km. Með öllum aukabúnaði nem...
 
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...