Rússar sæta harðri gagnrýni
Rússar sæta harðri alþjóðlegri gagnrýni fyrir fangelsisdóm, sem kveðinn var upp yfir Mikhaíl Khodorkovskí í gær. Samkvæmt dómnum mun Khodorkovskí, sem eitt sinn var ríkasti maður Rússlands, sitja í fangelsi til ársins 2017 fyrir fjársvik og peningaþvætti.
Khodorkovskí hefur setið í fangelsi frá árinu 2003 vegna átta ára fangelsisdóms sem hann hlaut fyrir skattsvik. Áður en hann var handtekinn hafði hann tekið þátt í stjórnmálaumræðu og gagnrýnt Vladímír Pútín, þáverandi forseta Rússlands og núverandi forsætisráðherra. Pútín lýsti því nýlega yfir í sjónvarpsviðtali, að „þjófurinn yrði að vera í fangelsi."
Bæði utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna og Evrópusambandið hafa gagnrýnt dóminn yfir Khodorkovskí og Platon Lebedev, sem fékk jafnþungan dóm. Vestræn ríki og mannréttindasamtök hafa fylgst grannt með málinu en litið hefur verið á það sem prófstein á sjálfstæði rússneskra dómstóla og nútímavæðingar þjóðfélagsins.
Nú segja sumir, að dómurinn staðfesti þær grunsemdir að lítið hafi breyst í Rússlandi. „Rússneska ríkisstjórnin getur einfaldlega ekki þróað nútímalegt hagkerfi án þess að þróa jafnhliða óháð dómskerfi," sagði Mark Toner, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagðist hafa orðið fyrir vonbrigðum með dóminn. og Sabine Leutheusser-Schnarrenberger, dómsmálaráðherra Þýskalands, sagði dóminn hafa staðfest það sem hún óttaðist mest varðandi Rússland.
Catherine Ashton, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sagði að ásakanir um að ekki væri allt með felldu í rússneska dómskerfinu valdi vonbrigðum og áhyggjum.
Mál Khodorkovskís vakti hins vegar litla athygli í Rússlandi í gær og fjölmiðlar þar fjölluðu lítið um dóminn.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 21. desember 2011, Erlent Vilja að dómur yfir Khodorkovskí verði ógiltur
- Fimmtudagur, 30. desember 2010, Erlent Í fangelsi til 2017
- Fimmtudagur, 30. desember 2010, Erlent Khodorkovskí dæmdur í 6 ára fangelsi
- Mánudagur, 27. desember 2010, Erlent Clinton gagnrýnir Rússa
- Þriðjudagur, 2. nóvember 2010, Erlent Khodorkovskí: „Ég vil ekki deyja í fangelsi"
-
Humperdinck og ömmurnar eru elst
-
Kosning um viðræður óvanaleg
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina



































