Nauðganir alvarlegt vandamál á Haítí
Skýrsla mannréttindasamtakanna Amnesty International hefur leitt í ljós að mikið er um nauðganir í flóttamannabúðum í Haítí. Eitt ár er liðið síðan harður jarðskjálfti reið yfir landið. Talið er að yfir ein milljón manna hafi misst heimili sín og enn búa margir í flóttamannabúðum.
Fjöldi frásagna kvenna birtast í skýrslunni, t.a.m. saga Guerline sem missti eiginmann sinn þegar heimili fjölskyldunnar hrundi í skjálftanum. Tveimur mánuðum síðar horfði hún upp á fjóra menn nauðga 13 ára dóttur hennar í flóttamannabúðum í Port-au-Prince. „Þeir sögðu við mig að ef ég segði frá myndu þeir drepa mig. Þeir sögðu að ef ég færi til lögreglunnar þá myndu þeir skjóta mig til bana. Ég er hrædd, ég get ekki búið á neinum öruggum stað þannig að ég varð að þegja,“ sagði Guerline en það er ekki hennar rétta nafn. Öllum konunum, sem segja sögu sína í skýrslunni, hefur verið gefið annað nafn til að koma í veg fyrir að nauðgararnir hefni sín á þeim fyrir að segja frá.
Sama kvöld og dóttur Guerline var nauðgað var henni sjálfri nauðgað. Hettuklæddir menn réðust að henni í búðunum.
Að sögn Amnesty International er lítið gert til að hjálpa Guerline og öðrum fórnarlömbum nauðgunar og kynferðislegs ofbeldis á Haítí. Nauðganir voru algengar á Haítí fyrir skjálftann en eftir að hann reið yfir hafa þær stóraukist.
Yfir 230 þúsund manns létust og 300 þúsund særðust í skjálftanum í janúar 2010. Mikil eyðilegging og mörg dauðsföll höfðu það í för með sér að margar konur og ungar stúlkur misstu fjölskyldur sínar og þau tengslanet sem hefðu getað varið þær frá ógnunum sem nú steðja að þeim. Lífsskilyrðin í flóttamannabúðunum séu slæm og ótrygg sem geri ástandið enn verra fyrir konurnar.
Talið er að rúm 1 milljón Haítí-búa búi í um 1.200 flóttamannabúðum víðsvegar um landið. Meirihlutinn er konur. „Konur og stúlkur í búðunum búa við ekkert öryggi,“ segir Gerardo Ducos, leiðtogi Amnesty International á Haítí. „Vopnuð gengi ráðast á konur þegar þeim sýnist, nokkuð öruggir um að þeir verði aldrei látnir svara fyrir það.“ Yfirleitt eru það vopnaðir menn eða hópur manna sem ráðast á konurnar þegar tekur að myrkva enda búðirnar flestar illa lýstar. Fæstar nauðganirnar eru tilkynntar til lögreglunnar.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 9. janúar 2011, Erlent 800.000 búa í flóttamannabúðum
- Fimmtudagur, 22. apríl 2010, Erlent Allt að 300 þúsund létust á Haítí
- Laugardagur, 14. maí 2011, Erlent Martelly settur í embætti forseta
- Föstudagur, 29. október 2010, Erlent Óttast frekari útbreiðslu kóleru á Haítí
- Miðvikudagur, 3. febrúar 2010, Erlent Kosningum frestað á Haítí
-
Humperdinck og ömmurnar eru elst
-
Kosning um viðræður óvanaleg
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina



































