Segir Bandaríkin stefna í þrot
Bandaríkin stefna hraðbyri í gjaldþrot fyrir árið 2020, ef ekkert verður að gert, að mati danska hagfræðingsins Jörgen Möller Örström. Segir hann að skuldasöfnun Bandaríkjanna sé svo geigvænleg að nú styttist í að skuldirnar verði óviðráðanlegar.
Örström þessi er fyrrverandi sendiherra Danmerkur og starfar nú sem fræðimaður við ISEAS, Institute of Southeast Asian Studies í Singapore. Hann hefur gefið út fjölda fræðirita um hagfræði, en þetta viðhorf sitt kynnti hann á fyrirlestri í tónlistarhúsinu í Kaupmannahöfn, þar sem hann talaði fyrir framan alla helstu stjórnmálaleiðtoga Danmerkur.
Sagði hann að hugsanlegt gjaldþrot Bandaríkjanna myndi hafa víðtækar afleiðingar, líka fyrir danskt efnahagslíf, og höfðaði þannig til áheyrenda sinna þar. Sagði hann að Bandaríkin yrðu að herða sultarólina verulega og skera niður um tvö til þrjú prósent af vergri landsframleiðslu, bara til að koma á stöðugleika í skuldum.
Það er talsvert meiri niðurskurður en talinn er nauðsynlegur í sumum verst stöddu evrulöndunum, eins og Grikklandi, sem þó er talið standa mjög illa. Hins vegar sagði Örström Bandarísk stjórnvöld ekki átta sig á þessu og forðast skattahækkanir á sama tíma og útgjöld væru aukin.
Á sama tíma sagði hann að þjóðin væri að eldast og því fyrirséð að útgjöld til heilbrigðis- og velferðarmála eigi bara eftir að aukast, ætli menn að viðhalda sömu viðmiðum í þeim efnum eins og nú. Hann spáði því að vaxtakostnaður Bandaríkjanna myndi vaxa úr átta til tíu prósentum af fjárlögum upp í um 20% árið 2020. Óhugsandi væri að sjá hvernig það gæti gengið upp, eða hvaðan allir þeir peningar ættu að koma. Bandaríkin stæðu frammi fyrir skelfilegu vandamáli.
Greint er frá ræðu Örströms á danska fréttavefnum business.dk og má lesa frétt vefjarins um ræðuna í heild sinni þar, á dönsku.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 8. ágúst 2011, Erlent Von á yfirlýsingu frá Obama
- Laugardagur, 6. ágúst 2011, Erlent Stjórnmálunum um að kenna
- Laugardagur, 6. ágúst 2011, Erlent Frakkar hafa trú á Bandaríkjunum
- Sunnudagur, 7. ágúst 2011, Erlent Stærðfræðikunnáttan skelfileg
- Mánudagur, 2. maí 2011, Erlent Segir Pakistan athvarf hryðjuverkamanna
-
Humperdinck og ömmurnar eru elst
-
Kosning um viðræður óvanaleg
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina



































