Ísraelar óttast múslímastjórn
Ísraelar óttast að fari Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, frá völdum geti það opnað leið fyrir múslíma að komast til valda. Það myndi hafa víðtæk áhrif á samskipti landanna tveggja, sem lengi hafa verið friðsöm, en þau undirrituðu friðarsamkomulag árið 1979.
Egyptaland var fyrsta Arabaríkið til að semja frið við Ísraela. Mubarak Egyptalandsforseti hefur leikið lykilhlutverk í að miðla málum á milli Ísraela og Arabaheimsins.
Nú óttast Ísraelar að nýrri ógn muni stafa frá Egyptum.
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, sagði í gær að miklar líkur væru á átökum á milli lýðræðissinnaðra byltingarsinna og stuðningsmanna harðlínumúslímastjórnar.
„Þetta eru tveir heimar, tveir helmingar, tvenns konar sjónarhorn. Annað tilheyrir hinum frjálsa heimi, hitt er heimur öfgamanna,“ sagði Netanyahu. „Hvort verður ofan á í Egyptalandi? Það skiptir höfuðmáli fyrir framtíð Egypta, þróun mála í þessum heimshluta og það skiptir miklu máli fyrir Ísraela.“
Hann bætti við að hugsanlega gætu þessi tvö öfl ekki komist að samkomulagi og þá gæti tekið við langt óvissutímabil fyrir egypsku þjóðina.
Ehud Barak, varnarmálaráðherra Ísrael, segist ekki vera í vafa um að valdatíð Mubaraks sé á enda. „Hans tími er liðinn,“ sagði Barak í viðtali við ísraelska sjónvarpsstöð.
Sérfræðingar telja að einu gildi hver arftaki Mubaraks verði, hann verði ekki jafn vinveittur Ísraelum. Líklegt sé þó talið að hann muni ekki ana að neinu, því ef friðarsamningar við Ísrael verði brotnir þá muni það hafa í för með sér breytt samskipti við Bandaríkin.
Næsta víst er talið að Íslamska bræðralagið muni fara með stórsigur í næstu kosningum í Egyptalandi.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Ísraelar óttast múslímastjórn/það gera Bandaríkjamenn einnig !!!!! -
Svanur Gísli Þorkelsson Vissulega munu múslímar verða áfram við völd í Egyptalandi
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 11. september 2011, Erlent Ísraelar vilja frið við Egypta
- Þriðjudagur, 8. febrúar 2011, Erlent Egyptar standi við samninga
- Mánudagur, 2. janúar 2012, Erlent Mubarak á sjúkrabörum í réttarsal
- Mánudagur, 31. janúar 2011, Erlent Sharif hvetur Mubarak til að segja af sér
- Mánudagur, 15. febrúar 2010, Erlent Biden á leið til Miðausturlanda
-
Humperdinck og ömmurnar eru elst
-
Kosning um viðræður óvanaleg
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...



































