Trúarstyrkjandi forsetatíð

Barack Obama ávarpaði National Prayer Breakfast, bænamorgunverð þjóðarinnar, í morgun. stækka

Barack Obama ávarpaði National Prayer Breakfast, bænamorgunverð þjóðarinnar, í morgun. KEVIN LAMARQUE

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að undanfarin tvö ár í Hvíta húsinu hafi kristin trú hans styrkst. Með því vísaði hann á bug efasemdum margra landa hans sem telja að forsetinn sé múslimi.

„Forsetaembættið hefur undarleg áhrif í þá átt að manni finnst maður þurfa að biðja,“ sagði hann á bænamorgunverði, National Prayer Breakfast, og uppskar mikinn hlátur. Þessi samkoma er haldin árlega og sækja hana þúsundir trúarleiðtoga, sveitarstjórnarmanna, þingmanna, embættismanna í Washington og alþjóðlegra fyrirmenna.

„Það á við um mig, líkt og okkur öll, að það hafa verið beygjur og krókar á trúargöngu minni. Hún hefur ekki alltaf verið eftir beinni braut. Ég hef þakkað Guði fyrir gleðina sem felst í því að vera faðir og það hvað Michelle er fús að sætta sig við mig,“ sagði forsetinn og vísaði til konu sinnar.

Ræða Obama var persónuleg og hann sagði frá því hvernig hann „fékk að kynnast Jesú Kristi persónulega og umfaðma hann sem drottinn minn og frelsara“ fyrir meira en 20 árum í Chicago.

„Þegar mér hefur orðið á eða ég hef orðið fyrir vonbrigðum þá hef ég spurt mig hvað Guð hafi ætlað mér og verið minntur á að áætlanir Guðs passa ekki alltaf við skammsýnar langanir okkar. Og ég get sagt ykkur að undanfarin tvö ár hafa dýpkað trú mína,“ sagði Obama.

Í kosningabaráttunni 2008 lenti Obama í þeirri undarlegu aðstöðu að þurfa að sannfæra bandaríska kjósendur um að hann væri kristinnar trúar. 

Faðir hans var frá Kenýa og fæddur múslimi. Miðnafn forsetans er Hussein og hann dvaldi á bernskuárum í Indónesíu þar sem múslimar eru í meirihluta íbúa. Andstæðingar hans reyndu að koma því inn hjá kjósendum að Obama væri í raum múslimi.

Hefð er fyrir því að Bandaríkjaforseti ávarpi gesti bænamorgunverðarins. Obama sagði gestunum að ungur prestur flytji hugleiðingu úr ritningunni á hverjum morgni og að þegar honum finnist verkefnin vera að vaxa sér yfir höfuð þá sé það trúin „sem heldur mér gangandi og forðar mér frá því að gefast upp.

Kristin trú mín hefur borið mig uppi undanfarin ár og enn frekar þegar við Michelle verðum vör við að fólk dregur trú okkar í efa.

Við erum minnt á að það sem skiptir máli að lokum er ekki hvað aðrir segja um okkur, heldur hvort við erum trú samvisku okkar og Guði okkar.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands.

Þátttaka í vörnum Íslands ótengd NATO

21:27 Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, hafnaði því alfarið í umræðum í finnska þinginu í dag að tillaga um að Finnar tækju þátt í norrænu samstarfi við að gæta lofthelgi Íslands væri hugsuð til þess að koma Finnlandi inn í Atlantshafsbandalagið (NATO). Meira »
Frá Sýrlandi.

„Marshall-aðstoð“ fyrir Sýrlendinga

21:23 Sendiherrar og starfsmenn utanríkisþjónustunnar í um 60 löndum ræddu í dag áætlun um að koma efnahag Sýrlands til bjargar, en átök hafa staðið yfir í landinu undanfarna 14 mánuði. Fulltrúar landa Arababandalagsins, Evrópusambandsins, Persaflóaríkjanna, auk fulltrúa SÞ tóku þátt í viðræðunum. Meira »

Skotar lögbinda áfengisverð

Skotar hafa bundið verð á áfengi í lög til að reyna að hemja drykkju landsmanna.
21:50 Skosk stjórnvöld hafa lögbundið lágmarksverð á áfengi í þeim tilgangi að stemma stigu við óhóflegri drykkju landsmanna. Ekki má selja áfengseininguna fyrir lægra verð en 50 pens frá og með apríl á næsta ári, en slík eining er skilgreind sem einn sentílítri. Meira »

Eldur í norskri eyju

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.
18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Fangar látnir lausir vegna verkfalls

Frá Bergen í Noregi.
20:29 Tugir fanga í fangelsinu í Bergen í Noregi voru leystir úr haldi í morgun vegna verkfalls opinberra starfsmanna í landinu. Fangarnir í fangelsinu, 72 að tölu, voru kallaðir á fund í morgun þar sem þeim var tilkynnt að fangelsið yrði tæmt til þess að fangaverðirnir gætu farið í verkfall og flestir fanganna yrðu því látnir lausir. Meira »

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.
17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Ríkasta kona heims

15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Breivik ætlar ekki að áfrýja

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik með lögmönnum sínum þeim Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra.
14:49 Norski fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivik bað um orðið í lok réttarhaldanna yfir honum í dag. Hann sneri sér til dómaranna og sagðist hafa íhugað að áfrýja ef hann yrði fundinn sekur, en síðan komist að þeirri niðurstöðu að gera það ekki. Meira »

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.
14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
2010 TOYOTA LANDCRUSIER GX
Toyota Landcrusier 150 GX. Sjsk. Diesel, Ekinn 36.000. 2010 árgerð. Fallegur o...
Hillusamstæða
Hillusamstæða 28 ára gömul hillusamstæða til sölu, var keypti í Heimilisprýði á...
Coleman Bayside 12" fellihýsi árg. 2003 til sölu
Coleman Bayside árg. 2003, 12" fellihýsi til sölu. heitt og kalt vatn, sólarsel...
Fleetwood Ceyenne - árgerð 2006
Fellihýsið hefur alltaf verið geymt inni á vetrum og er með öllum aukahlutum. Up...
 
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
15229 bílaleigubílar ríkiskaup

15229 - Bílaleigubílar - Rammasamni...
15262 15263 og 15264 frístunda- og gestahús

Tilboð óskast í þrjú frístunda- og...