Stærstu mistökin að hætta ekki eftir Abu Ghraib
Donald Rumsfeld, fyrrverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, er óspar á gagnrýni á fyrrum samstarfsmenn sína í nýútkominni ævisögu. Rumsfeld viðurkennir jafnframt að það hefði verið betra fyrir bandarísku þjóðina ef hann hefði sagt af sér eftir eftir Abu Ghraib hneykslið, sem kom upp 2004.
Myndir af misþyrmingum bandarískra hermanna á íröskum föngum í Abu Ghraib-fangelsinu í Bagdad hneyksluðu heimsbyggðina eftir að þær voru birtar í fjölmiðlum víða um heim.
Í bókinni Known and Unknown ver Rumsfeld þær ákvarðanir sem hann tók í tengslum við stríðið í Írak, þá segir hann frá embættismannaferli sínum. Þar greinir hann m.a. frá því þegar hann starfaði með Richard Nixon, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og öðrum forsetum úr röðum repúblikana, síðast sem George W. Bush.
Rumsfeld segir að sér hafi ekki tekist að sannfæra Bush um að samþykkja uppsögn sína eftir Abu Ghraib hneykslið. Það hafi verið sín stærstu mistök.
„Álagið á þjóðina var gríðarlegt. Það að halda að fólk sem var í okkar vörslu hafi verið meðhöndlað á jafn ógeðfelldan, sjúkan og skelfilegan hátt - algjörlega óviðunandi hátt,“ sagði Rumsfeld í sjónvarpsviðtali við Diane Sawyer hjá ABC.
„Ég sagði við forsetann að ég væri þeirrar skoðunar að ég ætti að segja af mér. Og ég held, að öllum líkindum, að staða hersins, Pentagons og þjóðarinn hefði verið betri, hefði ég gert það,“ sagði Rumsfeld í sínu fyrsta sjónvarpsviðtali í rúm fjögur ár. En hann lét af embætti í desember 2006 eftir langan ferill hjá varnarmálaráðuneytinu.
Bush lét þau ummæli falla að það hefðu verið ein stærstu mistökin í stríðsrekstrinum í Írak að fækka stórlega í bandaríska herliðinu skömmu eftir innrásina í Írak árið 2003. Rumsfeld segir að hægt sé að færa rök fyrri því en hann er þó tregur til að fallast á það mat.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 21. september 2010, Erlent Rumsfeld lætur allt flakka
- Þriðjudagur, 8. febrúar 2011, Erlent Saddam vildi dætur Rumsfeld dauðar
- Föstudagur, 9. apríl 2010, Erlent Vissu að Guantánamofangar voru saklausir
- Þriðjudagur, 16. nóvember 2010, Erlent Bush sakaður um ritstuld
- Fimmtudagur, 9. febrúar 2012, Erlent Ástralskir neita leynifangelsi
-
Humperdinck og ömmurnar eru elst
-
Kosning um viðræður óvanaleg
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina



































