Slanga slapp í járnbrautarlest

Myndin tengist ekki efni fréttarinnar. Mynd úr myndasafni.
Myndin tengist ekki efni fréttarinnar. Mynd úr myndasafni. Reuters

Rýma þurft danskan lestarvagn í dag, þegar slanga slapp úr tösku eiganda síns og hóf að leika lausum hala í vagninum, við lítinn fögnuð farþeganna.

Eigandanum gekk illa að handsama slönguna og þá var brugðið á það ráð að stöðva lestina í Fredericia í Jótlandi, þar sem farþegarnir fóru í annan vagn.

Eigandinn náði slöngunni eftir nokkurt  þref.

Frá þessu segir á vef Jyllands-Posten

Í fyrstu var talið að um python slöngu væri að ræða, en þær eru afar hættulegar. Svo reyndist þó ekki vera.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert