Enn skotið á fólk í Líbýu

Múammar Gaddafi á fundi í Tripoli í gær.
Múammar Gaddafi á fundi í Tripoli í gær. Reuters

Læknir á sjúkrahúsi í borginni Benghazi í Líbýu segir, að öryggissveitir Múammars Gaddafis, einræðisherra landsins, hafi drepið yfir 200 manns í borginni síðustu daga. Fullyrt er að skotið hafi verið á líkfylgd í borginni í morgun.

Sjónarvottar sögðu við AP fréttastofuna að hópar sérsveitarmanna, erlendra málaliða og  manna sem eru hliðhollir Gaddafi, hafi ráðist á mótmælendur í Benghazi í gær vopnaðir hnífum, rifflum og hríðskotabyssum. Verið var að bera 35 manns til grafar, sem létu lífið á föstudag í átökum við öryggissveitir.

Þá hefur AP fréttastofan í dag eftir sjónarvottum, að skotið hafi verið á líkfylgd í borginni í morgun þegar verið var að bera til grafar mann sem lét lífið í gær. Segir sjónarvotturinn að skot hafi lent í fæti mann, sem var að bera kistu fram hjá byggingu þar sem öryggissveitir hafast við.

Sagði maðurinn að öryggisveitirnar hafi fyrst skotið upp í loftið þegar líkfylgdin fór framhjá en síðan skotið á fólkið. 

Læknirinn, sem AP fréttastofan ræddi við, sagði, að enginn búnaður sé lengur til staðar á sjúkrahúsi hans, sem er annað af tveimur sjúkrahúsum í borginni. Því sé ekki hægt að taka við fleiri særðum.

„Ég græt," sagði læknirinn. „Hvers vegna hlustar umheimurinn ekki?" 

Læknirinn vildi ekki koma fram undir nafni að ótta við refsingu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert