Gaddafi til Venesúela?

Muammar Gaddafi.
Muammar Gaddafi. Reuters

Muammar Gaddafi, forseti Líbíu, gæti hafa flúið landið og farið til Venesúela. William Hague, utanríkisráðherra Bretlands, segir að hann hafi séð ákveðnar upplýsingar sem bendi til þessa.

„Ég hef engar upplýsingar um að hann sé þar en ég hef sé gögn sem benda til þess að hann sé á leiðinni þangað á þessari stundu,“ sagði Hague við blaðamenn í dag.

Sögðu sendistarfsmenn Breta að Hague hafi ekki verið að vísa til orðróma um brottför Gaddafis heldur byggði hann á óháðum heimildum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert