Umdeild ganga í höfuðborg Lettlands
Ganga gamalla lettneskra hermanna sem börðust með nasistum í seinni heimstyrjöldinni um götur Ríga í dag fór fram án óhappa. Fjölmennt lögreglulið gætti göngunnar en fjöldi manns mótmælti göngunni. Gangan er haldin þann 16. mars ár hvert, daginn sem lykilorrusta í baráttu Letta gegn innrásarherjum Sovétmanna átti sér stað.
Að sögn lögreglu tóku um 2.500 manns þátt í göngunni umdeildu um miðborg Ríga. Hermennirnir og stuðningsmenn þeirra, þar á meðal nokkrir þingmenn, veifuðu lettneska fánanum og lögðu blóm að Frelsisminnisvarðanum sem er til minningar um sjálfstæðisbaráttu landsins gegn Rússum.
Nokkrir tugi mótmælenda gerðu hróp að göngumönnum og notuðu gjallarhorn til þess að minna á voðaverk nasista.
Sovétríkin hertóku Lettland í júní árið 1940 samkvæmt samkomulagi við nasista. Því var hins vegar rift þegar Þjóðverjar réðust inn í Sovétríkin í júní 1941.
Sumir Lettar tóku þýsku hermönnunum sem frelsurum en aðeins viku fyrir komu þeirra höfðu Sovétmenn flutt 15.000 Letta til Síberíu.
Hörmungar fylgdu þó komu nasistanna sem myrtu 70.000 af 85.000 gyðingum í landinu með aðstoð innlendra samverkamanna.
Lettar af rússneskum ættum segja að ganga varpi dýrðarljóma á nasismann en hermennirnir segjast ekki hafa verið nasistar heldur hafi þeir verið að verja landið gegn stórveldinu Sovétríkjunum.
Um 146.000 Lettar börðust með herdeildum nasista. Um þriðjungur þeirra féll í orrustu eða í haldi Sovétmanna.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi
-
Humperdinck og ömmurnar eru elst




































