Elti tengdafjölskyldu sína með samurai-sverði

Samurai-sverð stækka

Samurai-sverð mbl.is

Hinn tvítugi Zen Timothy Singleton hefur verið færður í fangelsi fyrir að særa tvo ættingja sína. Atvikið átti sér stað þegar Singleton elti tengdafjölskyldu sína með samurai-sverði í íbúðarhverfi í suðurhluta Kaliforníu-ríkis í Bandaríkjunum.

Að sögn lögreglu mun hún óska eftir því að Singleton verði ákærður fyrir morðtilraun. Nágrannar hringdu á lögreglu á þriðjudag þegar þeir sáu Singleton æða á eftir fólki með svo kallað katana samurai-sverð.

Fimmtugur tengdafaðir Singleton var skorinn á læri og tuttugu og fjögurra ára gamall mágur hans hlaut skurð á enni eftir gler sem skaust á hann þegar Singleton braut rúðu með sverðinu.

Singleton sat á gangstéttarbrún þegar lögreglan kom auga á hann og handtók. Hann situr nú inni vegna rannsóknar á morðtilraun, vopnaðri árás, þjófnaði og skemmdarverkum.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Málverk Reinhardt Cristensen (úr Borgarfirðinum.).
Til sölu gamalt, nýviðgert málverk sem sýnir sveitabæ í Borgarfirðinum. Myndin ...
PPL Course 3. June 2013 / Einkaflugmannsnám hefst 3.júní.
Einkaflugmannsnám hefst 3.júní. Skráning í fullum gangi á www.flugskoli.is. Kenn...
Trúlofunar- og giftingarhringar í úrvali
Auk gullhringa eigum við m.a. titaniumpör á fínu verði. Sérsmíði, framleiðsla og...
VANTAR VARAHLUT.
Sárvantar stýrisdeili / eða jafnvel alla stýrismaskínuna í Citroen Xara Picasso ...
 
Kísilverksmiðja í helguvík

Kísilverksmiðja í Helguvík Mat á u...
Aðalfundur skipasmíðastöðvar njarðvíkur

Aðalfundur Aðalfundur Skipasmíðastöð...
Samkoma
Félagsstarf
Mánudaginn 20. maí k...
Fundarboð
Fundir - mannfagnaðir
Sjálfstæðisfél...