Rændi meintum banamanni dóttur sinnar
Þýskur hjartalæknir kom fyrir rétt í París í dag, ákærður fyrir að myrða 14 ára gamla franska stúlku árið 1982. Faðir stúlkunnar tók réttvísina í eigin hendur og lét ræna lækninum í Þýskalandi og færa hann í böndum til lögreglu í Frakklandi.
Dieter Krombach, sem er 75 ára, studdist við hækjur þegar hann gekk inn í réttarsalinn í París. Hann leit ekki á Andre Bamberski, 73 ára, sem eyddi 29 árum í að reyna að koma lögum yfir Krombach.
Franskur dómstóll fann árið 1995 þýska lækninn sekan um manndráp þótt hann væri fjarverandi. Var Krombach dæmdur fyrir að verða Kalinku, 14 ára gamalli stjúpdóttur sinni, að bana með því að sprauta í hana óþekktu efni.
Bamberski var handtekinn árið 2009 í Mulhouse í Frakklandi, skammt frá þýsku landamærunum. Hann hafði áður hringt í lögreglu og sagt henni, að Krombach væri að finna í anddyri dómhúss borgarinnar. Þar fannst Þjóðverjinn, bundinn og með sár á höfði.
Þýsk stjórnvöld höfðu áður neitað að framselja Krombach á þeirri forsendu, að réttað hefði verið yfir honum í Þýskalandi og hann sýknaður. Bamberski var hins vegar sannfærður um að Krombach hefði gefið Kalinku deyfilyf og ætlað að nauðga henni.
Bamberski var sjálfur ákærður fyrir mannrán og líkamsárás en hann viðurkenndi að hafa fengið menn til að ræna Krombach og flytja hann til Frakklands. Þar er nú réttað í málinu að nýju en Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu árið 2001 að Krombach hefði ekki notið fullra réttinda við fyrri réttarhöldin.
Krombach var sviptur lækningaleyfi og dæmdur í skilorðsbundna fangelsisvist árið 1997 fyrir að beita 16 ára gamla stúlku, sem var sjúklingur hans, kynferðislegu ofbeldi eftir að haf sprautað hana með deyfilyfi á lækningastofu sinni.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 26. mars 2010, Erlent Mannræningjar teknir af lífi í Kína
- Laugardagur, 6. ágúst 2011, Erlent Blendin viðbrögð við lækkun
- Föstudagur, 21. október 2011, Erlent Mætti með vændiskonu upp á arminn
- Fimmtudagur, 26. maí 2011, Erlent Tekinn af lífi með dýralyfi
- Fimmtudagur, 15. desember 2011, Erlent Sjakalinn í lífstíðarfangelsi
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...





































