Heitir að hætta fjárstuðningi við stjórnmálaflokka
Stormasamt getur veirð í stjórnmálunum. Harper með konu sinni á leið á stjórnmálafund í Charlottetown á Játvarðseyju í gær. reuters
Fari Íhaldsflokkurinn með sigur af hólmi í þingkosningunum í Kanada 2. maí næstkomandi heitir Stephen Harper leiðtogi hans og forsætisráðherra að uppræta allar opinberar greiðslur til stjórnmálaflokka.
Michael Ignatieff, leiðtogi Frjálslynda flokksins, sem er í stjórnarandstöðu, segir áform Harpers í anda bandarískra stjórnmálaflokka sem standi og falli með risaframlögum fyrirtækja.
Síðustu skoðanakannanir benda til að Íhaldsflokkurinn fari með sigur af hólmi í þingkosningunum og geti jafnvel hlotið þingmeirihluta einn og sér.
Ákveðið var að ganga til kosninga er tillaga um vantraust á samsteypustjórn Harpers var samþykkt í þinginu.„Skattgreiðendur eiga ekki að þurfa að styrkja stjórnmálaflokka sem þeir styðja ekki,“ sagði Harper við fréttamenn á kosningaferðalagi í bænum Moncton í Nýju-Brunswick, í gær.
Hann sagði að í mánuði hverjum streymdu risafjárhæðir úr ríkissjóði til stjórnmálaflokka óháð því hvort þeir hefðu reynt að afla sér fjár sjálfir eður ei.
Í stjórnartíð Jean Chretiens, þáverandi leiðtoga Frjálslynda flokksins, var því fyrirkomulagi komið á árið 2004, að sérhver flokkur fær árlega úr ríkissjóði sem nemur tveimur dollurum á hvert atkvæði sem hann hlaut í síðustu kosningum.
Harper segir að þetta fyrirkomulagi bjóði upp á kosnignar ótt og títt því flokkarnir eigi alltaf nóg fyrir herkostnaðinum sem því fylgir. Kosningarnar í maí verða þær fjórðu á aðeins sjö árum.
Stephen Harper hefur verið forsætisráðherra í minnihlutastjórn sem Íhaldsflokkurinn hefur leitt frá kosningum árið 2006.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 27. mars 2011, Erlent Boða til kosninga í Kanada 2. maí
- Þriðjudagur, 3. maí 2011, Erlent Tímamótakosningar í Kanada
- Þriðjudagur, 13. apríl 2010, Erlent Valdið aftur til almennings
- Miðvikudagur, 14. september 2011, Erlent Sigur stjórnarandstöðunnar blasir við
- Mánudagur, 3. maí 2010, Erlent Hart barist á síðustu metrunum
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































