Erlent
| AFP
| 8.4.2011
| 17:00
Gróf mannréttindabrot í N-Kóreu
Bandaríkin greindu í dag frá alvarlegum mannréttindabrotum í Norður-Kóreu, þar á meðal morð á ungbörnum og fyrirskipunum stjórnvalda til landamæravarða um að skjóta flóttamenn til bana.
Þetta kemur fram í árlegri mannréttindaskýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna. Þar er bent á ýmis mannréttindabrot í kommúnistaríkinu, en jafnframt tekið fram að erfitt sé að staðfesta réttmæti þeirra fyllilega þar sem að mestu er byggt á vitnisburði annarra, enda hafa Bandaríkjamenn lítinn sem engan aðgang að Norður-Kóreu.
Í skýrslunni segir að það sé stefna yfirvalda Norður-Kóreu að taka af lífi hvern þann sem gerir tilraun til að flýja landið, yfirleitt yfir landamærin til Kína. Jafnframt segir að ekki sé hægt að staðfesta hve margir kunni að hafa látið lífið með þeim hætti. „Landamæraverðir hafa að sögn þau fyrirmæli að skjóta til bana þá sem reyna að flýja og fangavörðum er jafnframt skipað að skjóta hvern þann sem reynir að sleppa úr pólitískum fangabúðum," segir í skýrslunni.
Konur sem sendar eru aftur til Norður-Kóreu, oft eftir mansal til Kína, eru þvingaðar í fóstureyðingar eða börn þeirra drepin í fæðingu, samkvæmt skýrslunni. „Flóttamenn sem tekst að sleppa frá Norður-Kóreu greina enn frá því að fjöldi fanga deyi þar af völdum pyntinga, sjúkdóma, hungurs, slæmum aðbúnaði eða öllu ofangreindu."
Utanríkiráðuneytið bandaríska segir jafnframt að enginn árangur hafi náðst í baráttunni fyrir því að fá lausa japanska borgara sem rænt var af Norður-Kóreumönnum á 8. og 9. áratugnum í því skyni að þjálfa þá sem njósnara. Þá segir að í landinu séu verulegar hömlur á tjáningarfrelsi almennings, þar á meðal internetinu. Þrátt fyrir allt segir í skýrslunni að svo virðist nú sem um 300.000 íbúar Norður-Kóreu eigi farsíma. Þeir megi þó ekki hringja út fyrir landssímana og mega eiga von á refsingum noti þeir leyfislausa kínverska síma.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 24. maí 2010, Erlent Viðskipti stöðvuð milli Kóreu-ríkjanna
- Þriðjudagur, 10. apríl 2012, Erlent 150.000 manns í fangabúðum N-Kóreu
- Mánudagur, 19. desember 2011, Erlent Fordæma mannréttindabrot
- Föstudagur, 31. desember 2010, Erlent Nýjar myndir birtar af Kim Jong-Il
- Miðvikudagur, 28. desember 2011, Erlent Fagna dauða Kims Jong-Ils
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi
Toyota Rav 2007
Toyota Rav 2007 ek.74.þús. sjálfskiptur heilsársdekk, nÝ skoðaður 2013
uppl. 69...
Sjálfskipt Nissan Almera 2001
Til sölu Nissan Almera Luxury árg. 2001, ekin 167 þús., skoðaður 2013, stgr.verð...
Gasnaglabyssa
Til sölu Hilti naglabyssa.
Gasnaglabyssa GX 100.
Upplýsingar í síma 8935005 ...
Hænsnahús til sölu
Til sölu heimili fyrir landnámshænur. Einangrað og klætt að innan. Varpkassar og...