Fréttaskýring: Hversdagsleika vísað á dyr
Kristján Jónsson kjon@mbl.is
Bretland er ekki lengur heimsveldi en fornar, breskar hefðir, auk fótbolta og popptónlistar, eru geysivinsælar um allan heim. Búist er við að allt að tvö þúsund milljónir manna muni fylgjast með sjónvarpsútsendingum frá brúðkaupinu í níu alda gamalli Westminster Abbey-kirkjunni á morgun. Það er tíu sinnum fleira fólk en fylgdist með útvarpslýsingum á brúðkaupinu 1947 þegar amma Vilhjálms, Elísabet önnur, giftist Filippusi prins. Þá var reyndar líka sjónvarpað í fyrsta sinni í Bretlandi frá konunglegu brúðkaupi þótt áhorfendur væru enn fáir.
Viðbúnaðurinn er mikill. Um 5000 lögreglumenn munu vera á verði í miðborg Lundúna á morgun og til vonar og vara hefur 60 manns sem grunaðir voru um að ætla að efna til óspekta af einhverju tagi, verið meinað að halda sig í miðborginni á brúðkaupsdaginn.
Gert er ráð fyrir að haldin verði götuteiti á um 5.500 stöðum í landinu. Ákafir aðdáendur hjónaleysanna voru sumir búnir að koma sér fyrir í svefnpoka og tjaldi við kirkjuna fjórum dögum fyrir sjálfan daginn. Sumir klæðast fánalitunum og láta sig aldrei vanta við stórar athafnir hjá hinum konunglegu.
Og sumir sem flýja gráan hverdagsleikann, jafnvel veruleikann smástund, koma frá fjarlægum löndum. Sarah Binns er 25 ára og frá Boston í Massachusetts, hún pantaði flugmiðann strax og skýrt var frá trúlofuninni. „Kate er frábær, hún er einmitt það sem konungsfjölskyldan þarfnast núna,“ segir Binns sem einnig er á því að Vilhjálmur hafi erft allt það besta frá móður sinni, Díönu. Góðan smekk og mikinn þokka – en hann sé laus við óeirðina.
Bretar veðja um flest en líklega eru engin veðmál um það hvort Catherine Middleton, dóttir kaupmanns og barnabarn námuverkamanns, muni segja já eða nei fyrir altarinu. Vandræðagangurinn í Karli ríkisarfa og kynslóð hans er að baki, segja bjartsýnir Bretar. Allt bendir til þess að Vilhjálmur og Kate séu ástfangin og ekki sé um eitthvert sjónarspil að ræða eins og þegar Karl og Díana heitin giftust 1981.
Forn ljómi og saga
Margt af því sem gerir hundruð milljóna manna heilluð af þessari umdeildu fjölskyldu er gamalt. Hefðir, saga, forn ljómi sem hrekur á brott enduróminn af slúðrinu og illvígum deilunum. Og kannski er þetta galdurinn, segja sérfræðingar um málefni konungsfjölskyldunnar bresku. Í heimi þar sem allt virðist svo hverfult sækja margir í eitthvað sem stendur af sér öll veður, skilnað, framhjáhald, hneyksli af öllu tagi.Sumt er þó orðið of gamaldags fyrir flesta. Ríkisstjórnin vill nú reyna að fá ríkiserfðalögum breytt þannig að kona geti erft krúnuna en í gildandi lögum gerist það aðeins ef enginn sonur hefur fæðst. En snúið getur orðið að fá samþykki ensku biskupakirkjunnar fyrir því að þjóðhöfðinginn megi ganga að eiga kaþólskan maka. Konungurinn/drottningin er yfirmaður kirkjunnar – en ef börnin yrðu alin upp í kaþólskri trú myndi næsti þjóðhöfðingi líklega verða hollur páfanum í Róm!
Og hvað heitið þér nú aftur?
Heimildarmenn fullyrtu í gær að búið væri að ákveða að opinber titill almúgakonunnar Catherine Middleton eftir giftinguna yrði Hennar konunglega tign prinsessa Vilhjálmur af Wales, jafn fáránlega og það hljómar á íslensku. Aðrir sögðu að hún yrði Hennar konunglega tign Katrín, prinsessa af Wales, sem vonandi gengur eftir.Samkvæmt mörg hundruð ára gömlum reglum og hefðum er það ríkjandi þjóðhöfðingi, Elísabet önnur, sem tekur af skarið. Venjulega myndi maður í stöðu Vilhjálms fá hertogatitil þegar hann giftir sig, það gæti vel orðið reyndin núna og Katrín yrði þá hertogaynja.
Ríkisarfinn Karl ber titilinn prins af Wales, eins og langflestir ríkisarfar hafa gert síðustu aldirnar. Hann hefur nú beðið lengur eftir konungstitlinum en dæmi eru um, nær 60 ár. En lengi hafa verið háværar raddir um að hinum fráskilda Karli verði skákað til hliðar, að Vilhjálmur taki strax við þegar amma hans deyr. Og eitt vefst fyrir mönnum: hvor verður æðri meðan Elísabet lifir, Katrín eða Camilla, hertogaynja af Cornwall?
Hagnast á frægðinni
Margir eiga eftir að hagnast vel á brúðkaupinu, hvort sem þeir framleiða minjagripi í Hong Kong, gera sjónvarpsþætti um kóngafólk eða baka tertur fyrir gesti og gangandi. Einn af þeim síðarnefndu er ungur maður, James Middleton, bróðir Catherine.Þessi verðandi drottningarbróðir er 23 ára gamall og fyrirtæki hans, Cake Kit Company, sem framleiðir dýran varning, hefur vaxið ásmegin síðustu mánuðina, að sögn Daily Telegraph. Og hann hefur þegar látið skrá þrjú ný fyrirtæki sem hann hyggst hrinda af stokkunum fljótlega. Middleton er sagður vilja verða nýr Richard Branson. „Middleton-fjölskyldan er að verða heimsfræg og hver gæti óskað sér betri búðarglugga fyrir dýrar vörur en Westminster Abbey?“ spyr fréttamaður breska blaðsins.






































