Kanadamenn kjósa á mánudaginn

Þingkosningar fara fram í Kanada á mánudaginn og þó búist sé við að Nýi Lýðræðisflokkurinn eigi eftir að ná góðum árangri benda skoðanakannanir til þess að vinstrisinnað fylgi eigi eftir að skiptast á milli hans og Frjálslynda flokksins og styrkja þannig stöðu Íhaldsflokksins.

Nýi Lýðræðisflokkurinn hefur ekki boðið fram áður en talið er að hann kunni að velta Frjálslynda flokknum úr sessi sem helsti stjórnmálaflokkurinn á vinstrivæng kanadískra stjórnmála.

Frá árinu 2006 hafa íhaldsmenn farið með stjórn landsins samfellt í tveimur minnihlutastjórnum. Kosningabaráttan undanfarnar vikur hefur verið mjög hörð en Íhaldsflokkurinn hefur einkum lagt áherslu á þann boðskap að engum sé betur treystandi fyrir efnahagsmálum Kanada en honum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Bandarískir hermenn. Myndin er úr safni.

Sjö hermenn létust í þyrluslysi

14:24 Sjö landgönguliðar létust á heræfingu í gærkvöldi í Arizona í Bandaríkjunum þegar tvær þyrlur skullu saman.  Meira »
Mótmælt skammt frá Kabúl.

Obama biðst afsökunar á bókabrennu

13:20 Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur sent Hamid Karzai, forseta Afganistan, afsökunarbeiðni vegna bandarískra hermanna í Bagram-stöðinni sem vanvirtu íslam með því að brenna Kóraninn og fleiri helgirit múslima. Meira »

Látin hlaupa í 3 tíma í refsingarskyni

Savannah Hardin.
13:35 Tvær bandarískar konur hafa verið handteknar eftir að þær létu níu ára stúlku hlaupa í þrjár klukkustundir samfleytt með þeim afleiðingum að hún fékk krampakast vegna ofþornunar og dó nokkrum dögum síðar. Voru konurnar að refsa stúlkunni fyrir að hafa logið að annarri þeirra. Meira »

Aðstoðar þörf í Mósambík eftir fellibylji

Starfsmaður Rauða krossins í útkalli.
11:46 Alþjóðlegi Rauði krossinn kallaði í dag eftir þremur milljónum dala, um 375 milljónum kr., til að aðstoða þúsundir fjölskyldna í Mósambík sem enn bíða aðstoðar eftir að tveir fellibyljir gengu yfir landið í síðasta mánuði. Meira »

Flytja erlenda fanga úr fangelsinu

Fangar í varðturni í Kerobokan-fangelsinu í Denpasar á Balí.
10:38 Yfirvöld í Indónesíu byrjuðu í dag að flytja erlenda fanga úr Kerobokan-fangelsinu á Balí. Þar hafa miklar óeirðir brotist út og hefur föngunum tekist að koma fangavörðunum frá og taka við stjórninni. Meira »

Segja Ben Bella ýmist lífs eða liðinn

Ahmed Ben Bella.
12:58 Misvísandi fréttir berast nú af því hvort Ahmed Ben Bella, fyrrum forseti Alsírs, sé lífs eða liðinn. Eitt dagblaðanna þar í landi hefur greint frá því að Ben Bella sé látinn, 96 ára að aldri, en alsírsk fréttastofa segir hann í stöðugu ástandi á spítala. Meira »

Fórnarlamba nýnasistahóps minnst

Angela Merkel kanslari við minningarathöfnina.
11:11 Einnar mínútu þögn var haldin í Þýskalandi í morgun til að minnast fórnarlamba nýnasista. Angela Merkel kanslari sagði fjölskyldum fórnarlambanna við sérstaka minningarathöfn í Berlín að þjóðin syrgði með þeim. Meira »

Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar myndskeið

Sprenging á umferðamiðstöð í Peshawar
10:07 Átta létust og þrjátíu særðust þegar sprengja sprakk í umferðamiðstöð í Peshawar í norðvesturhluta Pakistans. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni. Meira »

Breivik á marga pennavini

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik
09:37 Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik stendur í umfangsmiklum bréfaskriftum við fjölda manna úr fangaklefa sínum. Honum er mikið í mun að stefnuyfirlýsing hans, hið svokallaða manifesto, nái til sem flestra. Meira »

Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja myndskeið

Fangaverðir handteknir í Mexíkó
07:57 Tugir mexíkóskra fangavarða voru handteknir í gær, grunaðir um að hafa aðstoðað dæmda meðlimi eiturlyfjagengja við að flýja úr fangelsi síðastliðna helgi. Meira »

Halda hátíð fyrir Pútín

Frá hátíðahöldunum í Moskvu í morgun.
08:17 Um 30,000 manns gengu fylktu liði um miðborg Moskvu í morgun til að sýna stuðning sinn við forsetaframboð Vladimirs Pútíns forsætisráherra Rússlands. Stjórnarandstæðingar segja að fólki hafi verið skipað að taka þátt í hátíðahöldunum. Meira »

Segja samkynhneigð glæpsamlega

Frá Indlandi.
07:43 Innanríkisráðuneyti Indlands hvetur hæstarétt landsins til að úrskurða um að kynlíf samkynhneigðra sé glæpur. Ráðuneytið segir það vera ósiðlegt, gegn öllum náttúrulögmálum og að þannig smitist alnæmi. Meira »

Fundu lík fimm ára stúlku myndskeið

Kafarar finna fleiri lík í Costa Concordia
07:24 Kafarar fundu í nótt átta lík í flaki skemmtiferðaskipsins Costa Concordia sem marar undan strönd ítölsku eyjarinnar Giglio. Þar á meðal er lík fimm ára gamallar stúlku. Meira »

Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína myndskeið

Níu ára drengur yfirheyrður vegna skotárásar á stúlku
06:49 Níu ára gamall bandarískur drengur er í haldi lögreglu vegna gruns um að hafa skotið úr byssu á átta ára gamla bekkjarsystur sína. Meira »

Samkynhneigðir „ekki ofsóttir“ í Úganda

Yoweri Museveni forseti Úganda.
Í gær, 22:29 Forseti Úganda fullyrti í dag að hann væri ekki hlynntur ofsóknum gegn samkynhneigðum í landi sínu, þrátt fyrir að alræmt frumvarp gegn samkynhneigð hafi að nýju verið lagt fyrir þingið. „Samkynhneigðir hafa, í litlum mæli, verið til í okkar hluta svörtu Afríku," sagði forsetinn í viðtali við BBC. Meira »

Óöld í Írak í nótt

Frá Bagdad í Írak.
07:17 Að minnsta kosti 32 létu lífið í sprengju- og skotárásum í Írak í nótt, þar af létust 22 í höfuðborginni Bagdad.  Meira »

Strauss-Kahn fyrir dóm í mars

Dominique Strauss-Kahn
Í gær, 23:03 Fyrsta fyrirtakan í einkamálinu sem höfðað hefur verið í Bandaríkjunum gegn Dominique Strauss-Kahn hefur nú verið dagsett, og fer fram þann 15. mars. Hann mun því standa í ströngu í næsta mánuði því hann hefur líka verið boðaður fyrir rannsóknardóm í Frakklandi vegna ásakana um aðild að vændishring Meira »

Keyrði á fullum hraða á vegg

Björgunarmenn hjálpa farþegum sem út úr lestarflakinu við Once stöðina í Buenos Aires.
Í gær, 22:10 Aðkoman að lestarslysinu mannskæða í Buenos Aires í Argentínu í dag var skelfileg að sögn vitna. Lestin keyrði á fullu stími inn á lestarstöðina með bilaða hemla og áreksturinn varð gríðarharður. „Fólk var í kremju og öskraði í örvæntingu. Ég sá blóð og lík út um allt," sagði einn sjónarvotta. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Flottur hönnunarsófi
Til sölu mjög flottur sófi sem var hannaður fyrir Þjóðleikhúskjallarann þegar Þj...
VW Polo árg. 1999, 3 dyra
Mjög góður VW Polo til sölu , ný skoðaður, ný tímareim og nýtt í bremsum Verð 2...
2 sæta sófi til sölu
Svartur nettur 2 sæta sófi til sölu. Lítið notaður. Verð: 10.000 kr S: 772-79...
Silver Cross Barnavagn á 35 þús. kall núna
Flottur gamaldags vagn til sölu. uppl. 7757144...
 
Stúkan hlín
Félagsstarf
jHlín 6012022119 VI ...
Deildarlæknir við geðdeild
Heilbrigðisþjónusta
Deildarlæknir við geðdeild Sjúkrahússins...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs
Stjórnunarstörf
...