Yfirgáfu konungshöllina í þyrlu

Vilhjálmur Bretaprins og Kate Middleton stilltu sér upp fyrir ljósmyndara …
Vilhjálmur Bretaprins og Kate Middleton stilltu sér upp fyrir ljósmyndara með brúðarmeyjum og sveinum sem tóku þátt í athöfninni í gær. Reuters

Hertogahjónin af Cambridge, þau Vilhjálmur Bretaprins og Kate Middleton, hafa yfirgefið Buckingham-höll í Lundúnum, þar sem þau skemmtu sér með vinum og vandamönnum í gærkvöldi og í nótt. Framundan er brúðkaupsferð.

Þyrla flutti hjónin nýbökuðu á brott í morgun. Þau hafa beðið fjölmiðla um að virða einkalíf sitt á meðan brúðkaupsferðinni stendur.

Ekki liggur fyrir hvert þau muni fara.

Þyrlan á flugi yfir höllinni.
Þyrlan á flugi yfir höllinni. Reuters
Hjónin voru hress í morgunsárið.
Hjónin voru hress í morgunsárið. Reuters
Kate Middleton og Vilhjálmur Bretaprins voru gefin saman í gær.
Kate Middleton og Vilhjálmur Bretaprins voru gefin saman í gær. Reuters
Karl Bretaprins yfirgaf Clarence House í morgun í Aston Martin …
Karl Bretaprins yfirgaf Clarence House í morgun í Aston Martin bifreið sinni, sem sonur hans og tengdadóttir fengu afnot af í gær. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert