Nágranni bin Ladens handtekinn
Fjölskylda manns, sem pakistanskar öryggissveitir eru sagðar hafa handtekið í kjölfar árásar Bandaríkjamanna á hryðjuverkaleiðtogann Osama bin Laden, vill að hann fái að snúa heim.
Fjölskyldan býr skammt frá húsinu þar sem bin Laden var skotinn til bana á sunnudagskvöld. Breska sjónvarpsfréttastöðin Sky segir, að eigandi landsins, þar sem húsið stendur, hafi verið handtekinn eftir að í ljós kom að bin Laden bjó þar.
Stöðugt eru að koma fram nýjar upplýsingar um árás bandarísku sérsveitarmannanna á bin Laden. Arabíska sjónvarpsstöðin al-Arabiya hafði í dag eftir dóttur bin Ladens, sem var í húsinu þegar árásin var gerð, að faðir hennar hafi fyrst verið handtekinn en síðan hafi sérsveitarmennirnir skotið hann til bana.
Jay Carney, talsmaður Hvíta hússins, sagði hins vegar að bin Laden hefði veitt mótspyrnu. Fréttamönnum var síðar sagt, að svo hafi virst sem bin Laden væri að teygja sig eftir vopni. Í ljós kom hins vegar að hann var óvopnaður. Hins vegar voru vopnaðir verðir í húsinu og það kom til skotbardaga.
Carney sagði, að eiginkona bin Ladens hefði reynt að ráðast á sérsveitarmennina þegar þeir ruddust inn í herbergið þar sem bin Laden var. Konan fékk skot í kálfann en lét ekki lífið. Áður höfðu bandarískir embættismenn sagt, að bin Laden hefði reynt að nota eiginkonu sína til að skýla sér fyrir kúlum Bandaríkjamannanna.
Leon Panetta, forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar CIA, sagði við sjónvarpsstöðina NBC í gærkvöldi, að myndir af líki bin Ladens yrðu á endanum birtar.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 5. maí 2011, Erlent Birtir myndir af líkum í húsi bin Ladens
- Þriðjudagur, 3. maí 2011, Erlent Osama bin Laden var óvopnaður
- Mánudagur, 2. maí 2011, Erlent Reyndi að nota eiginkonuna sem skjöld
- Mánudagur, 2. maí 2011, Erlent Dvaldi skammt frá herskóla
- Þriðjudagur, 3. maí 2011, Erlent Tölvugögn í húsi bin Ladens
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi





































