Lagði blómsveig á lóð World Trade Center

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, lagði nú síðdegis blómsveig á lóðina þar sem turnar World Trade Center stóðu. Tæpur áratugur er liðinn frá því flugvélum var flogið á turnana en Osama bin Laden, sem bar ábyrgð á þeirri árás, var felldur í árás bandarískra sérsveitarmanna á sunnudag.

Mínútu þögn var eftir að Obama lagði blómsveiginn á svæðið þar sem turnarnir stóðu. Hann hitti síðan ættingja fólks, sem lét lífið í árásinni á New York og einnig fulltrúa slökkviliðsmanna og lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert