61 flóttamaður lést úr hungri og þorsta
Bátur með 72 afrískum flóttamönnum lenti í vandræðum á Miðjarðarhafinu með þeim afleiðingum að 61 flóttamaður lést úr hungri og þorsta. 11 komust lífs af eftir að bátinn rak að landi eftir 16 daga á sjó, en tveir þeirra létust skömmu síðar.
Þetta kemur fram í úttekt breska blaðsins Guardian í gær. Báturinn fór frá Trípolí í Líbíu 25. mars og var ferðinni heitið til ítölsku eyjarinnar Lampedusa. Um borð voru 72 farþegar, þar af 20 konur og tvö ungabörn. Eftir 18 tíma siglingu lenti áhöfnin í vandræðum og var haft samband við ítölsku strandgæsluna. Skömmu síðar kom herþyrla að bátnum, flugmennirnir sendi niður vatn og kex og sögðu skipstjóranum að bíða eftir hjálp. Engin aðstoð barst og enginn kannast við að hafa sent þyrluna á vettvang. Haft er eftir talsmanni ítölsku strandgæslunnar að hún hafi tilkynnt yfirvöldum á Möltu að báturinn stefndi þangað auk þess sem skipstjórnarmönnum á svæðinu hafi verið beðnir um að svipast um eftir bátnum. Yfirvöld á Möltu kannast ekki við málið.
Engin aðstoð barst en skipstjórinn sagði farþegunum að hann kæmist til Lampedusa. 27. mars hafði hann tapað áttum og eldsneytið búið. „Það var ekkert eldsneyti eftir, enginn matur, ekkert vatn, það var ekkert eftir,“segir Abu Kurke, sem er 24 ára. „Báturinn var á reki við mjög hættulegar aðstæður.“
Undir lok mánaðarins var báturinn í grennd við herskip frá Nato. Tvær flugvélar flugu frá skipinu og hringsóluðu yfir bátnum þar sem flóttafólkið hélt á hungruðum börnunum og veifaði. Vélarnar flugu í burtu og báturinn fjarlægðist herskipið án þess að þaðan bærist nokkur hjálp. Guaardian telur að herskipið hafi verð Charles de Gaulle frá Frakklandi, en það hefur ekki fengist staðfest.
Talsmaður Nato segir að Nato hafi ekki fengið beiðni frá bátnum og engin gögn séu um atvikið en næstu 10 daga féllu flóttamennirnir frá hver af öðrum. „Þegar við vöknuðum á morgnana sáum við stöðugt fleiri lík,“ segir Kurke. „Undir það síðasta vissum við ekki hvrj við vorum, menn ýmist báðu eða dóu.“ Hann segist hafa lhaldið sér lifandi með því að drekka þvag sitt og borða tannkrem.
10. apríl rak bátinn að landi nálægt Zlitan í Líbíu, skammt frá Misrata.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 28. maí 2011, Erlent Flóttafólki bjargað
- Mánudagur, 1. ágúst 2011, Erlent 25 lík um borð
- Föstudagur, 13. maí 2011, Erlent Segja herskip hafa hunsað flóttafólk
- Laugardagur, 18. febrúar 2012, Erlent Veiðiþjófar sækja í sig veðrið
- Sunnudagur, 15. maí 2011, Erlent Hundruð flóttamanna bjargað
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...




































