„Logar stafnanna á milli“

Eldur hefur logað í Athenu í alla nótt. stækka

Eldur hefur logað í Athenu í alla nótt. mynd/Kári P. Højgaard

mbl.is Jón Pétur Jónsson
„Skipið er alelda og það logar stafnanna á milli,“ segir færeyski þingmaðurinn Kári P. Højgaard í samtali við mbl.is, en hann býr í Rúnavík, skammt frá þar sem færeyski togarinn Athena brennur.

„Það var mikil sprenging um kl. tvö í nótt og svo fylgdu minni sprengingar í kjölfarið,“ segir hann. 

Mikinn reyk hefur lagt yfir Skálafjörð og hafa íbúar í nágrenninu yfirgefið heimili sín og verslunum verið lokað. Er fólk jafnframt hvatt til að halda sig innandyra.

Vindáttin er suðaustlæg og leggur reyk þvert yfir fjörðinn að bænum Skála og þar eru íbúar einnig búnir að yfirgefa heimili sín, eða um 800 manns.

Þá segir Højgaard að lögreglan sé búin að loka aðalveginum við Rúnavík og girða af svæði sem er í um 150 metra frá togaranum, en um borð í honum eru 18,5 tonn af ammoníaki.

Aðspurður segir hann að fólk sé almennt rólegt og bíði nú átekta á meðan slökkviliðið reyni að ná tökum á eldinum. En íbúarnir hafast nú við í skýli á vegum kirkjunnar í Nesvík. „Á meðan það logar í skipinu þá stöndum við frammi fyrir vanda. Sumir hafa sagt að það sé nauðsynlegt að draga skipið út úr firðinum, en vandamálið er að komast um borð í skipið og koma taug yfir í það.“

Mjög erfiðlega hefur gengið að ráða niðurlögum eldsins enda mikill hiti í skipinu og hefur slökkviliðsmönnum ekki tekist að fara um borð. Í nótt var reykurinn svo mikill að menn sáu ekki handa sinna skil. Staðan skánaði aðeins í morgun og að sögn Højgaard reyna menn nú að koma vír yfir í skipið svo það fljóti ekki af stað.

Þrír voru um borð í skipinu þegar eldurinn kviknaði í gærkvöldi. Þeir voru fluttir á sjúkrahús en grunur leikur á að þeir hafi orðið fyrir reykeitrun. Aðra hefur ekki sakað.

Þetta er í þriðja sinn sem eldur kviknar í Athenu. Verið var að vinna í skipinu þegar eldur kviknaði. Skipið logar stafnanna á milli og ljóst þykir að það muni ekki sigla framar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Frönsku reykingafólki fjölgar

Í gær, 23:30 Reykingafólki hefur farið nokkuð fjölgandi í Frakklandi þrátt fyrir reykingabann á skemmtistöðum og veitingastöðum og hærri skatta á tóbak en um þriðjungur Frakka reykir nú samkvæmt nýjum tölum. Þetta kemur fram á fréttavefnum Thelocal.fr. Meira »
Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands.

Þátttaka í vörnum Íslands ótengd NATO

Í gær, 21:27 Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, hafnaði því alfarið í umræðum í finnska þinginu í dag að tillaga um að Finnar tækju þátt í norrænu samstarfi við að gæta lofthelgi Íslands væri hugsuð til þess að koma Finnlandi inn í Atlantshafsbandalagið (NATO). Meira »

Embættismennirnir verði sóttir til saka

Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng.
Í gær, 23:03 Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng hvatti stjórnvöld í Kína til þess að sækja til saka löglausa embættismenn sem hefðu áreitt og misþyrmt honum, fjölskyldu hans og stuðningsmönnum viðtali við Reuters- fréttaveituna í dag sem er eitt það fyrsta sem hann hefur veitt eftir að hann kom til Bandaríkjanna síðastliðinn laugardag. Meira »

„Marshall-aðstoð“ fyrir Sýrlendinga

Frá Sýrlandi.
Í gær, 21:23 Sendiherrar og starfsmenn utanríkisþjónustunnar í um 60 löndum ræddu í dag áætlun um að koma efnahag Sýrlands til bjargar, en átök hafa staðið yfir í landinu undanfarna 14 mánuði. Fulltrúar landa Arababandalagsins, Evrópusambandsins, Persaflóaríkjanna, auk fulltrúa SÞ tóku þátt í viðræðunum. Meira »

Eldur í norskri eyju

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.
Í gær, 18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »

Skotar lögbinda áfengisverð

Skotar hafa bundið verð á áfengi í lög til að reyna að hemja drykkju landsmanna.
Í gær, 21:50 Skosk stjórnvöld hafa lögbundið lágmarksverð á áfengi í þeim tilgangi að stemma stigu við óhóflegri drykkju landsmanna. Ekki má selja áfengseininguna fyrir lægra verð en 50 pens frá og með apríl á næsta ári, en slík eining er skilgreind sem einn sentílítri. Meira »

Fangar látnir lausir vegna verkfalls

Frá Bergen í Noregi.
Í gær, 20:29 Tugir fanga í fangelsinu í Bergen í Noregi voru leystir úr haldi í morgun vegna verkfalls opinberra starfsmanna í landinu. Fangarnir í fangelsinu, 72 að tölu, voru kallaðir á fund í morgun þar sem þeim var tilkynnt að fangelsið yrði tæmt til þess að fangaverðirnir gætu farið í verkfall og flestir fanganna yrðu því látnir lausir. Meira »

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.
Í gær, 17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
Í gær, 16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
Í gær, 16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
Í gær, 16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
Í gær, 16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Ríkasta kona heims

Í gær, 15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Breivik ætlar ekki að áfrýja

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik með lögmönnum sínum þeim Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra.
Í gær, 14:49 Norski fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivik bað um orðið í lok réttarhaldanna yfir honum í dag. Hann sneri sér til dómaranna og sagðist hafa íhugað að áfrýja ef hann yrði fundinn sekur, en síðan komist að þeirri niðurstöðu að gera það ekki. Meira »

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
Í gær, 11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
Í gær, 15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.
Í gær, 14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
Í gær, 11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
SÖLUSKOÐUN
Söluskoðanir bifreiða. Ertu að kaupa bíl? Láttu fagmenn greina ástand hans áður ...
Haraldur Guðni Eiðsson er fertugur í dag
Haraldur verður að heiman á afmælisdaginn. Hann afþakkar blóm og gjafir en biður...
Áttu von á gestum? - www.nicecars.is
Áttu von á gestum í sumar? Bílaleigan Nice Cars ehf sérhæfir sig í 4x4 bílum. Fr...
Brauðkörfur til sölu
Fallegar gamaldags brauðkörfur til sölu - tilvaldar í sumarbústaðinn. Seljast bá...
 
Verkefnisstjóri - stofnun vigdísar finnbogadóttur
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
12836 fellahverfi útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....