„Ráðist á LA, ekki bara New York“

Osama bin Laden stækka

Osama bin Laden Reuters

Þrátt fyrir að hafa verið hundeltur af færustu leyniþjónustum heims árum saman, virðist Osama bin Laden hafa verið potturinn og pannan í öllum hryðjuverkaáformum al-Qaida samtakanna.

Þetta kemur fram í dagbókum hans og öðrum skjölum sem fundust í híbýlum hans.

Meðal ráðlegginga bin Ladens til samverkamanna sinna í al-Qaida var: „Ráðist á Los Angeles, ekki bara New York. Ráðist á lestir, jafnt sem flugvélar. Ef mögulegt, látið til skarar skríða á hátíðisdögum eins og 4. júlí og þegar tíundu ártíðar árásanna á tvíburaturnana verður minnst þann 11. september 2011.“

Hvatti til fjöldamorða

Umfram allt hvatti hann til þess að myrða sem flesta Bandaríkjamenn í einni og sömu árásinni, en það ætti að halda þeim í burtu frá Arabaheiminum.

Þetta sýnir fram á að flestar leyniþjónustur vanmátu áhrif hans og hvað hann gegndi stóru hlutverki innan  al-Qaida. Margir höfðu talið að hann yrði áhrifalaus, eftir að hann var hrakinn í einangrun.

Einnig fundust í skjölum hans áætlanir um að ráðast á vinsæla ferðamannastaði og sendiráð í Evrópu á síðasta ári, en bandaríska leyniþjónustan hafði komist á snoðir um þessa áætlun og ekkert varð af árásinni.

Vistaði samskipti á tölvudrif

Leit á heimili bin Ladens leiddi í ljós að hann var í miklum samskiptum við al-Qaida víða um heim, þar á meðal í Jemen, sem hefur verið mikil ógn við Bandaríkin. Hann virðist hafa verið vel upplýstur um aðferðir Bandaríkjanna til að verjast hryðjuverkum og lagði lærisveinum sínum línurnar um hvernig ætti að komast hjá hryðjuverkavörnum.

Í fórum hans fundust útreikningar um hversu marga Bandaríkjamenn þyrfti að drepa þangað til Bandaríkin neyddust til að draga herafla sinn úr Arabaheiminum. Hann leiðir að því líkum að það þurfi að drepa þúsundir til að ná þeim árangri.

Einnig var bin Laden með áætlanir um hvernig etja mætti bandarískum stjórnmálamönnum á móti hvorum öðrum og skapa þannig vantraust.

Bin Laden átti samskipti með því að vista þau á tölvudrif. Drifin voru síðan flutt til og frá heimili hans. Þetta mun vera fremur seinlegur samskiptamáti, en afar öruggur og erfitt að rekja slík samskipti.

Óvissa með nýjan leiðtoga

Ekki hefur verið staðfest hver verður nýr leiðtogi al-Qaida samtakanna, en líkum hefur verið leitt að því að það verði Ayman al-Zawahri, sem hefur verið hægri hönd hans.

Al-Qaida hefur vaxið fiskur um hrygg víða í Arabaheiminum, til dæmis er hreyfingin í Jemen orðin öflugasta al-Qaida hreyfingin sem þekkt er, bæði hvað varðar vopnabúnað og mannafla.

Stjórnmálaskýrendur hafa velt því fyrir sér hvort  al-Zawahri takist að halda utan um hreyfinguna, en áhersluatriði al-Qaida eru afar mismunandi eftir löndum, til dæmis vinna hreyfingarnar í Sómalíu og Alsír á gjörólíkan hátt.

Myndirnar geymdar hjá CIA

Breskir embættismenn segja að Bandríkjamenn hafi deilt með þeim ýmsum upplýsingum um fylgsni bin Ladens, en að þar hafi ekki verið neinar haldbærar sannanir um að hann hafi átt þátt í hryðjuverkaárásum þar í landi á undanförnum árum.

Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað að myndir af líki bin Ladens eigi ekki að koma fyrir almenningssjónir. Þær eru geymdar í höfuðstöðvum CIA og bandarískir þingmenn munu hafa streymt þangað í stórum stíl til að skoða þær.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Frönsku reykingafólki fjölgar

Í gær, 23:30 Reykingafólki hefur farið nokkuð fjölgandi í Frakklandi þrátt fyrir reykingabann á skemmtistöðum og veitingastöðum og hærri skatta á tóbak en um þriðjungur Frakka reykir nú samkvæmt nýjum tölum. Þetta kemur fram á fréttavefnum Thelocal.fr. Meira »
Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands.

Þátttaka í vörnum Íslands ótengd NATO

Í gær, 21:27 Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, hafnaði því alfarið í umræðum í finnska þinginu í dag að tillaga um að Finnar tækju þátt í norrænu samstarfi við að gæta lofthelgi Íslands væri hugsuð til þess að koma Finnlandi inn í Atlantshafsbandalagið (NATO). Meira »

Embættismennirnir verði sóttir til saka

Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng.
Í gær, 23:03 Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng hvatti stjórnvöld í Kína til þess að sækja til saka löglausa embættismenn sem hefðu áreitt og misþyrmt honum, fjölskyldu hans og stuðningsmönnum viðtali við Reuters- fréttaveituna í dag sem er eitt það fyrsta sem hann hefur veitt eftir að hann kom til Bandaríkjanna síðastliðinn laugardag. Meira »

„Marshall-aðstoð“ fyrir Sýrlendinga

Frá Sýrlandi.
Í gær, 21:23 Sendiherrar og starfsmenn utanríkisþjónustunnar í um 60 löndum ræddu í dag áætlun um að koma efnahag Sýrlands til bjargar, en átök hafa staðið yfir í landinu undanfarna 14 mánuði. Fulltrúar landa Arababandalagsins, Evrópusambandsins, Persaflóaríkjanna, auk fulltrúa SÞ tóku þátt í viðræðunum. Meira »

Eldur í norskri eyju

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.
Í gær, 18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »

Skotar lögbinda áfengisverð

Skotar hafa bundið verð á áfengi í lög til að reyna að hemja drykkju landsmanna.
Í gær, 21:50 Skosk stjórnvöld hafa lögbundið lágmarksverð á áfengi í þeim tilgangi að stemma stigu við óhóflegri drykkju landsmanna. Ekki má selja áfengseininguna fyrir lægra verð en 50 pens frá og með apríl á næsta ári, en slík eining er skilgreind sem einn sentílítri. Meira »

Fangar látnir lausir vegna verkfalls

Frá Bergen í Noregi.
Í gær, 20:29 Tugir fanga í fangelsinu í Bergen í Noregi voru leystir úr haldi í morgun vegna verkfalls opinberra starfsmanna í landinu. Fangarnir í fangelsinu, 72 að tölu, voru kallaðir á fund í morgun þar sem þeim var tilkynnt að fangelsið yrði tæmt til þess að fangaverðirnir gætu farið í verkfall og flestir fanganna yrðu því látnir lausir. Meira »

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.
Í gær, 17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
Í gær, 16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
Í gær, 16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
Í gær, 16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
Í gær, 16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Ríkasta kona heims

Í gær, 15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Breivik ætlar ekki að áfrýja

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik með lögmönnum sínum þeim Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra.
Í gær, 14:49 Norski fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivik bað um orðið í lok réttarhaldanna yfir honum í dag. Hann sneri sér til dómaranna og sagðist hafa íhugað að áfrýja ef hann yrði fundinn sekur, en síðan komist að þeirri niðurstöðu að gera það ekki. Meira »

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
Í gær, 11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
Í gær, 15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.
Í gær, 14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
Í gær, 11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
GLÆSILEGIR
GLÆSILEGIR Teg. MYSTERY - Hægt að nota ÁN HLÝRA - Glæsileg blúnda, fæst í A, B, ...
Myndir til sölu
Fallegar leirmyndir til sölu. Seljast báðar á 2.500 kr. Upplýsingar í síma 863-7...
FRÁBÆRT SUMARHÚS TIL LEIGU
Frábært sumarhúsi á góðum stað. Stutt á 3 golfvelli. Frítt í einn völl. Uppl. í ...
Dekk Land Cruiser 120 Michelin heilsárs/sumar 265/65 r17
dekk undan 120 bíl, dekkin eru slitin og vel með farin.. Verð 40 þús. Uppl. í...
 
Hjálpræðisherinn samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Sigurður...
Aðalfundur lögfræðingafélags íslands

Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands ve...
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...