Trump býður sig ekki fram

Donald Trump býður sig ekki fram til forseta.
Donald Trump býður sig ekki fram til forseta. STEVE MARCUS

Donald Trump hefur tilkynnt að hann ætli ekki að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna á næsta ári. Þakkaði hann stuðningsmönnum sínum en sagði að viðskiptin væru hans helsta ástríða og hann væri ekki tilbúinn til að yfirgefa einkageirann. Sagðist hann þó fullviss um að hann hefði borið sigur úr býtum í forkosningum repúblikana og í kosningunum sjálfum. Bandaríska fréttastofan Fox News greindi frá þessu á Twitter-síðu sinni nú fyrir stundu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert