Egypti leiðir al-Qaeda

Saif al-Adel.
Saif al-Adel.

Hryðjuverkasamtökin al-Qaeda hafa valið egypskan fyrrum sérsveitarmann sem leiðtoga til bráðabirgða eftir fráfall Osama bin Ladens. Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN sagði frá þessu í kvöld.

Sagði CNN, að Saif al-Adel, sem hefur verið í forustusveit al-Qaeda, hafi verið útnefndur leiðtogi. Hafði CNN þetta eftir  Noman Benotman, líbískum fyrrum félaga í samtökunum sem hefur nú afneitað hugmyndafræði þeirra. 

Pakistanska dagblaðið The News birti einnig frétt í kvöld um að al-Adel hefði verið útnefndur leiðtogi al-Qaeda og hafði það eftir ónafngreindum heimildarmönnum í Rawalpindi í Pakistan.

Benotman sagði við CNN, að herskáir íslamistar hafi fyllst vaxandi óþreyju vegna þess að al-Qaeda útnefndi ekki nýjan leiðtoga. Talið er að Egyptinn Ayman al-Zawahiri, sem lengi var hægri hönd bin Ladens, verði á endanum útnefndur leiðtogi en tilnefning Adels til bráðabirgða sé til að meta viðbrögð íslamista við að múslimi, sem ekki er frá Arabíuskaga, leiði samtökin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert