Elsta kona heims látin

Maria Gomes Valentim var orðin 114 ára þegar hún lést..
Maria Gomes Valentim var orðin 114 ára þegar hún lést.. Reuters

Maria Gomes Valentim, sem var elsta kona heims, lést í dag á sjúkrahúsi í Brasilíu. Hún var 114 ára gömul.

Valentim fæddist 9. júlí árið 1896. Hún missti eiginmann sinn árið 1946. Valentim eignaðist einn son, fjögur barnabörn, sjö barnabarnabörn og fimm barnabarnabarnabörn.

Valentim hefur þakkað langlífi sitt því að hún hafi alla tíð neytt hollrar fæðu.

Hún var lögð inn á sjúkrahús síðast liðinn sunnudag vegna lungnabólgu. Hún lést vegna sýkingar sem hún fékk samkvæmt fréttaveitunni Globo G1.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert