Viðræðum um aðild lokið

Utanríkisráðherra Króatíu, Gordan Jandrokovic
Utanríkisráðherra Króatíu, Gordan Jandrokovic Reuters

Viðræðum Evrópusambandsins við Króatíu um aðild að sambandinu lauk formlega í dag og verður Króatía væntanlega 28 ríkið sem gengur inn í ESB. Stefnt er að inngöngu Kóratíu í Evrópusambandið þann 1. júlí 2013.

„Dagurinn í dag er sögulegur dagur fyrir Króatíu," sagði utanríkisráðherra Króatíu, Gordan Jandrokovic , en viðræðurnar hafa staðið yfir í sex ár.

Nú þurfa aðildarríkin 27 að samþykkja inngöngu Króatíu og eins verður að fá samþykki heima fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert