Dýrast í Sviss, Noregi og Danmörku
Sviss, Noregur og Danmörk eiga það sameiginlegt að vera dýrustu löndin í Evrópu árið 2010. Miðað við meðaltal í Evrópusambandsríkjunum 27 þá voru verð í löndunum þremur um helmingi hærri, að því er fram kemur í rannsókn Eurostat, hagstofu ESB.
Ísland hafnar í 10 sæti listans, mitt á milli Austurríkis og Belgíu. Verðlagning hér á landi í fyrra í sambanburði við meðaltal ESB-ríkjanna var 11% hærra. Sem dæmi má nefna að verð á áfengi og tóbaki á Íslandi var 55% hærra en meðaltal ESB. Einu löndin sem voru dýrari en Ísland í þeim flokki voru Írland (70% hærra en í ESB) og Noregur (137% hærra).
Ríkin í Norður-Evrópu voru almennt dýrust heim að sækja en löndin í suðaustri ódýrust. Samanburðurinn byggist á því að reikna út svonefnd jafnvirðisgildi (Purchasing Power Parity).
Verðlagning í Sviss var 48% hærri en meðaltal ESB-ríkjanna, 47% hærri í Noregi og 43% í Danmörku.
Ódýrstu löndin voru Makedónía (56% undir meðaltalinu), Albanía (50% undir meðaltali) og Búlgaría (49% undir meðaltali).
Noregur var dýrasta landið í sex af tólf flokkum sem voru kannaðir, og það næst dýrasta í fimm flokkum. Áfengi og tóbak var allt að 137% dýrara í Noregi heldur en meðaltal ESB-ríkjanna segir til um. Hótel og veitingastaðir voru um 78% dýrari og verð á matvælum og óáfengum drykkjum um 65% hærra.
Eini flokkurinn sem var undir meðaltali ESB var fjarskiptakostnaður.
Alls tóku 37 ríki þátt í könnuninni. Auk ESB-ríkjanna 27 tóku EFTA-ríkin Ísland, Noregur og Sviss þátt. Einnig Svartfjallaland, Króatía, Makedónía og Tyrkland, sem hafa sótt um inngöngu í ESB. Loks Albanía, Bosnía-Hersegovína og Serbía.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 29. júní 2010, Erlent Kostnaður við heilbrigðiskerfi hækkar
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi






































