San Fermín fer stóráfallalaust af stað
Fjórir eru slasaðir eftir nautahlaup á fyrsta dag San Fermín-hátíðarinnar í borginni Pamplona á Norður-Spáni í dag. Hundrað hlaupamanna hlupu með sex risastórum bardaganautum og þremur ungnautum um mjó stræti borgarinnar. Stendur hátíðin yfir í viku.
Þrír Spánverjar og einn Panamamaður slösuðust lítillega og var gert að sárum þeirra á sjúkrahúsi eftir hlaupið. Er leiðin sem hlaupin er tæpir 850 metrar og endar í nautaatshring borgarinnar. Tók hlaupið í dag um tvær og hálfa mínútu að sögn skipuleggjenda hátíðarinnar.
Stendur hátíðin til 14. júlí og fylgir henni yfirleitt mikil ölvun gesta og er það árlegur viðburður að menn slasist í nautahlaupunum sem öðluðust heimsfrægð eftir að Ernest Hemingway skrifaði um þau í bókinni Og sólin rennur upp.
Búist er við því að yfir milljón manns taki þátt í hátíðarhöldunum í ár þó að ekki gerist allir svo djarfir að hlaupa með nautunum. Í fyrra voru gestir um 1,5 milljónir en um 200 þúsund manns búa í Pamplona. Ár hvert slasast um 200 til 300 manns, flestir af því að detta í hlaupinu en sumir verða undir nautunum eða eru stungnir.
Síðasta banaslys á hátíðinni varð fyrir tveimur árum þegar 27 ára gamall Spánverja var rekinn á hol. Fór horn nauts í gegnum háls hans, hjarta og lungu.
Á kvöldin er nautunum slátrað í nautaatshringnum og er boðið upp á kjötið á veitingahúsum borgarinnar.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 8. júlí 2011, Erlent Nautahlaupari þungt haldinn
- Miðvikudagur, 13. júlí 2011, Erlent Sjö meiddust í nautahlaupi
- Fimmtudagur, 14. júlí 2011, Erlent Yfir 40 særðir í Pamplona
- Laugardagur, 3. júlí 2010, Erlent Rekinn í gegn í nautahlaupi
- Mánudagur, 8. ágúst 2011, Erlent Von á yfirlýsingu frá Obama
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































