Nautahlaupari þungt haldinn
Ástralskur karlmaður er alvarlega slasaður eftir að naut stakk hann í lærið i hinu árlega nautahlaupi á San Fermín-hátíðinni í Pamplona á Spáni. Reif horn nautsins slagæð í lærinu. Er maðurinn sagður hafa ögrað nautinu.
Henti nautið manninum til í sandinum í nautaatshring borgarinnar. Liggur maðurinn nú þungt haldinn á sjúkrahúsi. Þá mörðust sex aðrir hlauparar, tveir Bandaríkjamenn, annar Ástrali, Breti, Ítali og Spánverji, en eru ekki alvarlega sárir eftir hlaupið.
Þúsundir manns hlupu með nautunum eftir götum Pamplona í Navarra-héraði, flestir þeirra hvítklæddir með rauða vasaklúta eins og hefð er fyrir. Þegar hersingin kom í nautaatshringinn byrjaði maðurinn sem slasaðist að baða út öllum öngum, hlaupa og stökkva fyrir aftan eitt nautanna.
Þegar skepnan sneri sér að honum reyndi maðurinn að hlaupa í aðra átt en rann og hrasaði í sandinum. Rak nautið þá annað hornið í gegnum hægra læri mannsins, henti honum eftir jörðinni og ýtti höfðinu í bak hans.
Aðrir hlauparar reyndu að dreifa athygli nautsins til að bjarga manninum en milljónir sjónvarpsáhorfenda gátu fylgst með sjónarspilinu í beinni útsendingu.
Fjórir slösuðust lítillega í gær á fyrsta degi hátíðarinnar sem stendur yfir í viku.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 6. september 2010, Erlent Naut stakk mann til bana
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































