Segjast hafa séð 30 látna

Ummerki eftir sprenginguna í Ósló í dag.
Ummerki eftir sprenginguna í Ósló í dag. Reuters

Norska ríkisútvarpið hefur nú eftir sjónarvottum, að þeir hafi séð allt að þrjátíu látna á Utøya eftir að maður, dulbúinn sem lögreglumaður, skaut   á ungmenni sem þar voru í sumarbúðum ungliðasamtaka Verkamannaflokksins.

Hefur NRK  eftir sjónarvottum, að fjöldi líka hafi verið í flæðarmálinu.

Lögregla hefur ekki staðfest að fólk hafi látið lífið á eyjunni. Á vef Uddeval sjúkrahússins í Ósló kemur fram, að fimm hafi verið fluttir þangað særðir frá eyjunni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert