Allt lék á reiðiskjálfi

SCANPIX NORWAY

Norska ríkissjónvarpið birtir í dag upptöku úr eftirlitsmyndavélum verslunarinnar Vita Megastore sem er í 500 metra fjarlægð frá staðnum þar sem sprengja sprakk í miðborg Óslóar á föstudag. 

Hér að neðan má sjá upptökur frá sex mismundi sjónarhornum í búðinni þegar sprengjan sprakk. Allt hristist og skelfur eins og jarðskjálfti hafi riðið yfir og vörur kastast úr hillunum. 

Iselin Myrbostad, starfsmaður Vita Megastore, segir við NRK, að mikil hræðsla hafi gripið um sig í búðinni þegar sprengjan sprakk.

„Mikið af vörum hrundi úr hillum. Ég hélt í fyrstu að það væri kominn jarðskjálfti, en ég fann svo fyrir gífurlegum þrýstingi í  eyrunum,“ segir Iselin og bætir við að hún hafi í kjölfarið fundið fyrir miklum verkjum. 

Myrbostad segir ástandið hafa verið súrrealískt og fólk hafi þurft á einhverjum að halda til að tala við.

Í dag er fyrsti vinnudagur Myrbostad eftir hryðjuverkaárásirnar. Hún segir að ástandið sé smátt og smátt að færast í samt lag.

Hér má sjá myndskeiðið

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert