Dæmdir í yfir 6 þúsund ára fangelsi
Fjórir fyrrum liðsmenn sérsveitar hersins í Gvatemala voru í gær dæmdir í yfir sex þúsund ára fangelsi fyrir hlutdeild í fjöldamorðum á tímum borgarastyrjaldar í landinu.
Þrír fyrrum hermenn voru dæmdir í 6.060 ára fangelsi hver fyrir að hafa tekið þátt í fjöldamorðum á rúmlega 200 almennum borgurum árið 1982. Meðal fórnarlambanna eru börn og konur.
Fyrrum yfirmaður í hernum var dæmdur í 6.066 ára fangelsi fyrir sömu fjöldamorð sem framin voru í þorpinu Dos Erres í norðurhluta landsins.
Segir í frétt Guardian að dómarnir séu táknrænir þar sem samkvæmt lögum í Gvatemala er hámarksdvöl fanga í fangelsi fimmtíu ár.
Voru mennirnir dæmdir í þrjátíu ára fangelsi fyrir hvert fórnarlamb auk 30 ára fyrir glæpi gegn mannkyninu. Einn þeirra fékk sex ára dóm að auki fyrir að stela eigum fórnarlambanna.
Fyrir utan réttarsalinn beið hópur fólks sem lifði af fjöldamorðin. Fögnuðu þau niðurstöðunni en margir brustu í grát þegar ljóst var að mennirnir fengju þungan dóm. „Við höfum beðið í mörg ár eftir því að réttlætið nái fram að ganga," segir Raul de Jesus Gomez sem er einn þeirra sem lifði af.
Hann segist hafa horft á hermennina taka fólk af lífi allt í kringum hann en íbúar þorpsins þurftu að bíða á hnjánum í fimm klukkustundir á meðan kvalarar þeirra myrtu fólk úr hópnum.
Eru þetta önnur réttarhöldin yfir fjöldamorðingjum á tímum borgarastyrjaldarinnar sem stóð yfir frá árinu 1960 til ársins 1996. Talið er að yfir 200 þúsund, flestir þeirra indíánar, hafi verið teknir af lífi þegar heilu þorpin voru þurrkuð út.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 21. nóvember 2011, Erlent Lét fórnarlömbin kalla sig „pabba“
- Laugardagur, 13. ágúst 2011, Erlent Sjö dæmdir fyrir árás í Pakistan
- Mánudagur, 27. júní 2011, Erlent 657 hermenn dæmdir
- Miðvikudagur, 6. júlí 2011, Erlent Níu öldungar dæmdir fyrir fjöldamorð
- Miðvikudagur, 1. febrúar 2012, Erlent Dæmdir vegna Bosníustríðsins
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































