Blendin viðbrögð við lækkun
Lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor's segir stjórnmálamenn í Bandaríkjunum hafa sýnt sig ófæra um að takast á við mikinn hallarekstur ríkisins og skuldabyrðina sem hleðst upp.
S&P hefur lækkað lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna í AA+ og metur horfurnar þar að auki neikvæðar. Líkur séu á að einkunnin verði færð frekar niður innan tveggja ára nái umbætur ekki fram að ganga.
Matsfyrirtækið segir framkomu stjórnmálamanna undanfarna mánuði sýna að stjórn landsins sé „óstöðugri, óskilvirkari og ófyrirsjáanlegri,“ sem auki líkurnar á því að einn daginn geti landið ekki staðið við skuldbindingar sínar.
Lækkunin var gerð þrátt fyrir kröftug mótmæli úr Hvíta húsinu, sem segir matið meingallað og að á því sé pólitísk slagsíða.
Talsmaður fjármálaráðuneytisins segir S&P skeika um tvö þúsund milljarða dala í útreikningum sínum.
John Chambers, formaður þjóðarskuldbindinganefndar S&P varði niðurstöðuna.
„Þetta er spurning um fjárlög Bandaríkjanna til meðallangs og langs tíma. Koma verður böndum á þau,“ sagði Chambers í samtali við CNN. „Þetta er vandamál sem hefur orðið til á löngum tíma undir núverandi stjórn og þeirri sem á undan kom.“
Hann vísaði til langrar baráttu forsetans og löggjafa úr báðum flokkum, en hún hafi leitt til þes að landið var skyndilega komið að barmi greiðslufalls síðastliðinn þriðjudag. Á síðustu stundu tókst að komast að samkomulagi sem kom í veg fyrir það. Markaðir um allan heim fylgdust agndofa með.
Fyrstu viðbrögð annars staðar í heiminum voru yfirveguð. Japanir og Ástralir brugðust rólegir við, og sagði forsætisráðherra síðarnefnda landsins, Julia Gillard, að horfa ætti til undirliggjandi þátta.
Kínverjar segjast á hinn bóginn eiga fullan rétt á því að krefjast þess að Bandaríkjamenn leysi úr skuldavanda sínum. Á hinum opinbera fréttavef Xinhua segir að yfirvöld í Washington verði að „horfast í augu við það að hinir gömlu góðu dagar þegar þau gátu tekið lán til þess að koma sér út úr vandræðum eru liðnir.“
Sumir sérfræðingar segja að lækkunin muni engin áhrif hafa. Þrátt fyrir yfirvofandi greiðslufall gekk Bandaríkjunum vel að bjóða út tugi milljarða í nýjum skuldabréfum í vikunni. Þá náði ávöxtunarkrafa á skuldabréf landsins metlægðum í vikunni, en það er til marks um mikla eftirspurn fjárfesta.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 6. ágúst 2011, Erlent Stjórnmálunum um að kenna
- Mánudagur, 8. ágúst 2011, Erlent Von á yfirlýsingu frá Obama
- Sunnudagur, 7. ágúst 2011, Erlent Stærðfræðikunnáttan skelfileg
- Laugardagur, 6. ágúst 2011, Erlent Frakkar hafa trú á Bandaríkjunum
- Föstudagur, 16. desember 2011, Erlent Lækka lánshæfismat Kanaríeyja
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































