Stjórnmálunum um að kenna
Barack Obama Bandaríkjaforseti ásamt þeim John Boehner, leiðtoga fulltrúadeildarinnar (t.v.) og Harry Reid, leiðtoga öldungadeildarinnar. Reuters
Lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor's tengir lækkun lánshæfiseinkunnar Bandaríkjanna við þráteflið í stjórnmálum landsins. Málamiðlunin sem gerð var á þriðjudag til þess að koma í veg fyrir greiðslufall „er ekki nóg til þess, að okkar mati, að koma á stöðugleika í skuldaþróuninni til meðallangs tíma,“ segir í yfirlýsingu fyrir fyrirtækinu.
„Ennfremur endurspeglar lækkunin þá skoðun okkar að dregið hafi úr skilvirkni, stöðugleika og fyrirsjáanleika bandarískrar stefnumótunar og að stofnanir stjórnkerfisins hafi veikst eftir því sem efnahagsvandinn hefur aukist.“
S&P segir hinar neikvæðu horfur vísa til þess möguleika að lánshæfiseinkunnin verði lækkuð í AA (úr AA+) innan tveggja ára ef dragi úr pólitískum vilja til þess að skera niður eða efnahagsaðstæður versni.
„Okkar skoðun er sú að kjörnir fulltrúar veigri sér við að takast á við hinn kerfislæga vanda með þeim hætti sem sæmir landi með einkunnina AAA,“ segir í yfirlýsingunni.
S&P er almennt álitið áhrifamest matsfyrirtækjanna þriggja. Hin fyrirtækin tvö, Moody's og Fitch Ratings, sögðust bæði fylgjast með baráttu Bandaríkjanna við hallareksturinn með niðurfærslu í huga.
S&P varaði Bandaríkjastjórn fyrst við mögulegri lækkun í apríl á þessu ári. Í júlí, þegar hanaslagur Obama og Repúblikana var að komast í hámæli, setti S&P Bandaríkin á athugunarlista og varaði við lækkun innan 90 daga. Beðið yrði með ákvörðun þar til ljóst yrði hver niðurstaða viðræðnanna yrði.
Samkomulagið sem náðist í byrjun vikunnar felur í sér 917 milljarða dala lækkun skulda á tíu árum, en fól einnig óskipaðri þingnefnd að gera tillögur að 1.500 milljarða niðurskurði til viðbótar. Áætlun nefndarinnar á að liggja fyrir undir lok árs.
Í augum S&P dugði þetta ekki til þess að halda AAA-einkunninni. Fyrirtækið hafði vonast eftir fjögur þúsund milljarða aðgerðaáætlun sem fæli bæði í sér niðurskurð og skattalækkanir. Þingflokkar gátu hins vegar ekki komið sér saman um neitt í líkingu við það.
John Chambers, formaður þjóðarskuldbindinganefndar S&P, segir að getuleysi stjórnmálamanna hafi ráðið lækkun einkunnarinnar. „Það fyrsta sem þeir hefðu átt að gera var að hækka skuldaþakið tímanlega, þannig að komist hefði verið hjá þessari umræðu til að byrja með,“ sagði Chambers í samtali við CNN.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 8. ágúst 2011, Erlent Von á yfirlýsingu frá Obama
- Laugardagur, 6. ágúst 2011, Erlent Frakkar hafa trú á Bandaríkjunum
- Laugardagur, 6. ágúst 2011, Erlent Blendin viðbrögð við lækkun
- Sunnudagur, 7. ágúst 2011, Erlent Stærðfræðikunnáttan skelfileg
- Föstudagur, 16. desember 2011, Erlent Lækka lánshæfismat Kanaríeyja
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































