Kínverskt flugmóðurskip á siglingu
Kínverjar hafa að undanförnu unnið hörðum höndum að uppbyggingu hersins þar í landi en kínverski herinn er um þessar mundir langstærsti her heims. Í dag hélt fyrsta kínverska flugmóðurskipið úr höfn á leið til æfingar.
Varnarmálaráðherra Kína segir að um sé að ræða reglubundnar æfingar og mun flugmóðurskipið að hans sögn snúa fljótlega til hafnar aftur. Segja Kínverjar skipið einkum ætlað til rannsóknarverkefna og heræfinga.
Flugmóðurskipið er 300 metra langt og var keypt vélarvana og hálfklárað árið 1998. Talið er að skipið hafi upprunalega verið smíðað í Úkraínu fyrir sjóher Sovétríkjanna og bar það nafnið Varyag á þeim tíma. Smíði skipsins var aldrei kláruð sökum falls Sovétríkjanna árið 1991.
Hernaðarsérfræðingar hafa bent á að Kínverjar séu að öllum líkindum að prófa vélar og tækjabúnað skipsins. Að sögn er skipið enn hálfklárað og t.a.m. vanbúið þeim tækjum sem nauðsynleg eru til að lenda flugvélum á skipinu. Hafa þeir bent á að samkvæmt myndum sem birst hafa af flugmóðurskipinu virðist einungis vera hægt að lenda þyrlum á því.
Búast má við áframhaldandi prófunum og æfingum næstu árin.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 11. janúar 2011, Erlent Bandarískt flugmóðurskip í S-Kóreu
- Þriðjudagur, 14. september 2010, Erlent Japanar og Kínverjar deila
- Fimmtudagur, 15. desember 2011, Erlent Myndir af nýju kínversku herskipi
- Miðvikudagur, 29. desember 2010, Erlent Efnahagur Kína knýr stóraukna vígvæðingu
- Miðvikudagur, 1. september 2010, Erlent Kínverjar hefja heræfingar í Gulahafi
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































