Tóku sendiráð Líbíu í Stokkhólmi
Hópur fólks braut sér leið inn í líbíska sendiráðið í Stokkhólmi rétt eftir hádegi í dag. Fólkið yfirbugaði verði sem voru staddir í húsinu. Um 15 lögreglubílar eru á vettvangi og götum í nágrenni sendiráðsins hefur verið lokað.
Tugir alvopnaðra lögreglumanna eru komnir inn í húsið, en fólkið hótar að fremja sjálfsmorð komi þeir nær. Það hefur hengt borða framan á húsið, sem á er letrað: „We will kill ourselves if you try come in“.
Frá þessu segir á vefsíðu sænska dagblaðsins Dagens Nyheter.
Að minnsta kosti einn hangir út um glugga á efri hæð og hótar að stökkva. Ekki er vitað hversu margir eru í hópnum, en lögregla áætlar að það séu á bilinu fimm til tíu manns.
Svo virðist, sem fólkið sé að mótmæla stjórnarfari Gaddafis í Líbíu. Fólkið kastar ýmsu smálegu út um glugga sendiráðsins og hefur flaggað með eldri gerð af fána Líbíu, sem var í gildi áður en Gaddafi komst til valda.
Lögregla bíður nú eftir túlki, en enginn þeirra sem inni í húsinu eru talar sænsku.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 11. ágúst 2011, Erlent Sendiráðstökufólkið handtekið
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































