Íbúar Tottenham taka til
Í frétt Sky sjónvarpsstöðvarinnar kemur fram að um táknrænan atburð hafi verið að ræða - íbúarnir vilja sýna heiminum að lífið gangi sinn vanagang á ný í hverfinu þeirra.
Ótrúleg samstaða
Þingmaður hverfisins, David Lammy segir ótrúlegt að fylgjast með samstöðu íbúanna í þessu hverfi sem hafi upp á svo margt að bjóða. „Ég ólst upp á þessum stað. Ég ólst upp án föður og í fátækt. Móðir mín sagði mér að þú gætir verið fátækur en átt þitt stolt þrátt fyrir það."
Hann segir að það sé einungis lítið hlutfall íbúanna sem tók þátt í óeirðunum og þá, ásamt utanaðkomandi einstaklinga, skorti það stolt sem einkenni íbúa hverfisins.
Þrátt fyrir að búið sé að opna fyrir umferð um High Road, þar sem óeirðarseggir köstuðu bensínsprengjum og kveiktu í bifreiðum, eru enn margar verslanir lokaðar.
Einn skartgripasali og veðlánari sem Sky sjónvarpsstöðin ræddi við er óviss um framtíðina eftir að kveikt var í verslun hans og hún rænd. Hann hafi orðið fyrir því að vera rændur í 25 skipti um ævina. Hann hafi verið stunginn og hótað með byssu. Hann hafi lifað af og haldið áfram. Nú vilji hann endurtaka leikinn og rísa upp úr öskustónni á ný.
Fjölmargir hafa sýnt þeim sem urðu fyrir eignatjóni samstöðu og eru það einkum þeir sem reka lítil fyrirtæki sem hafa fengið stuðning frá almenningi. Meðal annars ætlar rakarinn Aaron Biber, 89 ára, að opna rakarastofu sína á ný eftir að hafa fengið 25 þúsund punda styrk frá almenningi.
Brotist var inn á rakarastofu hans,rúður brotnar og öllu steini léttara stolið, jafnvel hraðsuðukatlinum. Hann hefur sterka skoðun á því hvernig eigi að refsa óeirðaseggjunum: „Þetta er lýður. Ef ég næði í þá myndi ég skera þá á háls," segir Biber og bætir við „og ég meina það."
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 8. ágúst 2011, Erlent Von á yfirlýsingu frá Obama
- Miðvikudagur, 17. ágúst 2011, Erlent Karl Bretaprins í Tottenham
- Laugardagur, 6. ágúst 2011, Erlent Frakkar hafa trú á Bandaríkjunum
- Þriðjudagur, 16. ágúst 2011, Erlent 1200 handteknir vegna mótmæla
- Sunnudagur, 7. ágúst 2011, Erlent Skella skuldinni hver á annan
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi






































