Í fangelsi fyrir Facebook-síðu

Lögreglumenn fyrir utan Adidas-búð í Birmingham sem brotist var inn …
Lögreglumenn fyrir utan Adidas-búð í Birmingham sem brotist var inn í 8. ágúst. Reuters

Ungur Breti sem stofnaði Facebook-síðu til að hvetja til óeirða í Warrington, skammt vestur af Manchester, var í dag dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að hvetja til afbrota. Lögreglan segir að dómurinn sendi skýr skilaboð og muni vonandi fæla aðra frá því að leika leikinn eftir.

Sá sem dóminn hlaut er Perry Sutclifee-Keenan, 22 ára.

Gert hafði verið ráð fyrir að dómurinn yrði kveðinn upp í september en því var flýtt vegna þess hversu alvarleg afbrot hans þóttu, samkvæmt frétt Warrington Guardian.

Eftir að dómurinn hafði verið kveðinn upp benti talsmaður lögreglunnar í Chesire á að Facebook og aðrir samfélagsmiðlar hefðu verið notaðir til að hvetja til uppþota og annarra brota sem væru til þess fallin að valda miklum ótta meðal almennings. Lögreglan hefði frá upphafi fylgst vel með þessum miðlum og reynt að handtaka þá sem hvöttu til glæpa á netinu. Dómurinn sýndi hversu alvarleg slík brot væru.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert